Gestabók

Skrifa í Gestabók

  • Skráðir notendur gefi upp notandanafn og lykilorð efst á síðunni og skrifi svo færslu í reitinn hér að neðan. Gestabókarfærslan birtist strax.
  • Óskráðir notendur geta einnig skrifað færslu. Athugasemdir þeirra birtast strax og ekki þarf að staðfesta uppgefið netfang.

Gestir:

Okkur vantar þig Ómar

Frímann heiti ég og er Valdimarsson. Þú verður að gef kost á þér sem forseta íslands, maður með þín sjónarmið og tengingu þín við fólkið er nauðsynlegur á bessastaði.

Frímann (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 19. apr. 2012

Sævar Óli Helgason

Jæja...!

Í fúlustu alvöru...! Miðað við nýjustu fréttir af Alþingi... Er virkilega ekki hægt að fá þig í forsetaframboð...?

Sævar Óli Helgason, fim. 23. feb. 2012

Sævar Óli Helgason

Hurru...?

Elsku karlinn minn... Hvernig er það með þig er ekki hægt að plata þig í að fara í framboð til forseta... Gerðu það... Plís...? Kv. Sævar Óli Helgason

Sævar Óli Helgason, sun. 12. feb. 2012

Hvítbók Umhverfisráðuneytis

Sæll Ómar. hér er linkur á síðu umhverfisráðuneytis þar sem fjallað er um endurskoðun náttúruverndarlaga og byrtar myndir og einhver texti af fundi um Hvítbóká Selfossi: http://www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/2019 Er þessi umfjöllun um fundinn á Selfossi eitthvað svipuð og þú upplifðir hana, en þú ert á myndunum og tókst þátt á fundinum. Kveðja Dagur Bragason

Dagur Bragason (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 3. feb. 2012

.. 2012 er forsætisráðherrann gamall IBM ....

Þú hafðir rétt fyrir þér fyrir 50 árum ... því skammstöfunin IBM þýðir: Illa Biluð Manneskja! Kveðja Friðrik Ólafs

Friðrik Ólafsson (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 17. jan. 2012

Kjartan D Kjartansson

Gvendareyjar

Sæll vertu ég fann þig á blogginu og sendi þér vinar beiðni undyr nafninu Bulgaria. Ég er tengdur ættini sem á Gvendareyjar (móðir mín Hrefna Arngrímsdóttir) mig langar að eignast myndyr af eyjunum og að komast þangað helst í sumar, ef þú gætir bent má á hvar ég get skoðað myndir af eyjunum og eða loftmynd myndi ég vera þér þakklátur.

Kjartan D Kjartansson, þri. 3. jan. 2012

Minning um föður minn Hilmar Þorbjörnsson

Heill og sæll Ómar Ragnarsson. Ég vil þakka þér fyrir ummæli um föður minn og umfjöllun og vísindalega samantekt um vormenn og hetjur , sannar hetjur, okkar íþróttasögu sem vissulega er glæsileg, en þessir fjálsíróttamenn hins íslenska vors í verður seint gerð full skil eða þakkað það afrek sem skilaði þessari þjóð á verðlauna- og virðingarpalla heimsíþróttanna. Þú mannst þessa tíma vel, varst þarna sjálfur í æfingu og keppni á melunum, auk þess að vera orðinn hetja þessarar þjóðar í mörgum skilningi. Þakka þér fyrir mig og mína. Þórður Eric.

Þórður Eric Hilmarsson Ericson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 28. nóv. 2011

Vestastasti hluti Evrópu?

Bjargtangar á móti Flores, Azoreyjunum?

Ólafur Sveinsson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 19. sept. 2011

Lax lax lax

Sæll Ómar! Er ekki rétt: Frá því snemma að morgni til sólarlags, sérðu ekkert nema lax, lax lax. " til " er sleppt í texta sem ég fann á netinu. Kveðja Guðmundur Guðlaugsson Karlakór Kjalnesinga

Guðmundur guðlaugsson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 14. sept. 2011

Mótmæli við frekari virkjanir ?

Ég hef spurt þessara spurningar annarstaðar og var t.d. bent hingað. Er til sem er að safna undirskriftum gegn frekari virkjunum ? Er semsagt til einhver undirskrifta söfnunun sem myndi hljóma einhvern veginn svona ?: "Ég hér með lýsi því yfir að ég er á móti frekari virkjunarframkvæmdum og hvet alþingi til að verjast þeim" Svo myndi maður skrifa undir.

Ölvir Styrmisson (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 1. sept. 2011

eignir

tilmæli til þjóðþingsfulltrúa Húseignir eiga að vera alls staðar jafnmetnar mætti vera heldur hærri úti á landi því þar er dýrara að byggja. út með staðarvísitölu allar eignir metnar ef6tir ástandi hvar á landinu sem þær eru síðan ræður fólk hvar það vill búa. er ekki í átthagafjötrum vegna húsnæðis.

Jóhanna Þorsteinsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 29. júlí 2011

Geoengineering

Hefur þú heyrt um geoengineering? Veistu til þess að einhverjar tilraunir hafi verið framkvæmdar á Íslandi? Ég á sérstaklega við svokallað "chemtrails" sem er brennisteinn sem er úðað í heiðhvolfin til að stemma stigu við hlýnun jarðar. Og hverskonar skýjamyndun er þetta annars?: https://www.facebook.com/media/set/?set=a.188968057830775.50622.121218661272382&type=1

Sallý (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 20. júlí 2011

Sveinn Þór Hrafnsson

Vetni fyrir heiminn

Sæll, Ég hef vetnistæki fyrir þig og bílinn þinn. Spurning ertu til í að prufa? Þetta er plug and play.. og tekur ekki lengi tíma að koma fyrir. kveðja, Svenni-8214823-Vagnhofdi 9 Ekki hlusta á vitleisingana fyrr en þú hefur prufað..

Sveinn Þór Hrafnsson, þri. 19. apr. 2011

Niðurtalningin er hafin

Ég er byrjaður að telja niður í að sjá uppáhalds boxarann minn Amir Khan berjast við Paul McCloskey 16. apríl, ég var einmeitt að sjá það að Stöð 2 Sport sýnir bardagann - að sjálfssögðu :) Hlakka til að heyra í þér á nýjan leik, ekkert varið í aðra lýsendur en þig og Bubba ( mig langar að fara sjá endurkomu hjá Bubba í lýsingu) Kv. Stefán

Stefán (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 29. mars 2011

Vísa

Ég elska þig Helga um helgar og helgarnar helga ég þér.. Því vil ég helga þér Helga það helgasta um helgar á mér... Kærar kveðjur til Ómars, sem elskar Helgu sína útaf lífinu.... F.Þóra

F. Þóra (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 27. mars 2011

Kærleikur og manngæska

Kæri Ómar, ég var að hlusta á útvarp Sögu í gær 30. desember og heyrði viðtal við þig. Þú, eins og vanalega fórst vítt og breytt og hlustaði ég m.a. á lag þitt eldur og ís og hafði unun af. Það sem snart mitt hjarta var þegar þú talaðir um Gunnar Thoroddsen og um sjúkdóminn alkahólisma. Ég hef sjaldan eða aldrei heyrt "venjulegan mann" tala af svo miklum skilningi og alúð um sjúkdóminn eins og ég heyrði í gær. Það sem mér fannst svo fallegt, var þegar þú sagðir að Gunnar væri, ef eitthvað, meiri maður en ella, vegna sjúkdóms síns. Þetta snart mig djúpt. Ég hef upplifað mikla fordóma í garð alkahólista í gegnum tíðina og hef burðast með fullan poka af skömm í gegnum lífið. Bæði vegna sjálfrar mín og svo ekki síður vegna beggja foreldra minna. Ég braust til náms og hef verið ofarlega í mannorðastiganum (eins og þú nefndir), en hef alltaf passað mig á að segja engum hver mín fortíð er. Þú er mikill maður Ómar og ég er ekki vön að segja álit mitt á því sem ég heyri, en ég get ekki annað en þakkað þér fyrir manngæskuna, skilninginn og kærleikann. Kær kveðja, Hrefna

Ágústa Hrefna Lárusdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 31. des. 2010

stjórnarskrá

Til hamingju Ómar með kosninguna

bpm (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 2. des. 2010

stjórnarskrá

Sæll Ómar og til hamingju með að vera kosin til stjórnlagaþings, vill koma með ábendingu um innlegg í nýja stjórnarskrá að gjöld séu ekki notaðir sem skattar heldur ekki hærri enn nemur kosnaði vegna hvers verkefnis sem þau eru ætluð til ,til er ofanflóðasjóður útbólgin sem er innheimtur af hverri fasteign á landinu til hvers og ekki notaður , tel að komist regla á hlutina ef fylgst sé með að gjöld séu ekki misnotuð , skapist meiri trú á stjórnkerfið ,kv Bjarni P Magnússon

bpm (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 2. des. 2010

Ólína Þorvarðardóttir

Ólína Þorvarðardóttir

Kæri Ómar. Ég óska þér hjartanlega til hamingju með kjör þitt á stjórnlagaþingið. Kær kveðja.

Ólína Þorvarðardóttir, þri. 30. nóv. 2010

Kvöldið

Kvöldið var æðislegt það væri æðislegt ef þú myndir koma með umfjöllun um einn ótrúlegasta bardaga frá upphafi, þetta var ROSALEGT!!! Takk fyrir frábært BOX kvöld :)

Steingrímur (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 16. okt. 2010

Ómar í sænska sjónvarpinu í kvöld

Ágæti Ómar. Þú tókst þig vel út í ríkissjónvarpinu hérna í Svíþjóð í kvöld. Dansaðir og söngst á hafnarbakkanum :) Góðar stundir Kveðja úr Lundi

Einar (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 1. okt. 2010

Vantar hjálp

Sælir Vantar smá hjálp og þú ert sá eini sem mér dettur í hug að geti hjálpað mér. Er að leita að einu sérstöku barnaefni frá Noregi og myndbandi sem oft var sýnt á RÚV fyrir nokkrum árum. Kv S. Hilmar sigurdur.hilmar(hjá)gmail.com

Hilmar (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 26. sept. 2010

Stefán Stefánsson

Hamingjuóskir

Til hamingju með þennan áfanga Ómar minn. Sá viðtalið sem Sigurlaug tók við þig og heyrði líka viðtalið á Bylgjunni.... gaman að fylgjast með þér og sjá að þú ert alltaf síungur. Farðu vel með þig og hafðu það gott.

Stefán Stefánsson, sun. 19. sept. 2010

Til hamingju Ómar

Fljúgðu heill inn í framtíðina. Siggi og Angelika

Sigurður Grímsson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 17. sept. 2010

Til hamingju

Hr.Ómar Ragnarsson, ég óska þér til hamingju með daginn og dag íslenskrar náttúru, þú ert okkar eini sanni föðurlandsvinur, kv. Tómas J. Knútsson ps.Móðir Jörð er glöð í dag

Tómas J. Knútsson (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 16. sept. 2010

Karl Ólafsson

Hamingjuóskir

Innilegar hamingjuóskir með árin sjötíu og dag íslenskrar náttúru.

Karl Ólafsson, fim. 16. sept. 2010

Ómar Ragnarsson

Innilega til hamingju með afmælið. Eigðu góðan dag og áfram alla daga. kveðja Kristín Sigmars

Kristín Sigmarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 16. sept. 2010

Ólína Þorvarðardóttir

Hjartans hamingjuóskir

Kæri Ómar. Ég færi þér hjartanlegar hamingjuóskir á afmælisdaginn þinn. Takk fyrir margar ógleymanlegar stundir sem við áttum hér á árum áður á fréttastofu Sjónvarpsins, hlátra og kæti í sambandi við flugferðir, fréttavinnslu, mistök í útsendingu o.s.frv., o.s. frv. Njóttu dagsins. Bestu kveðjur til fjölskyldunnar. Ólína Þ.

Ólína Þorvarðardóttir, fim. 16. sept. 2010

Halldór Jóhannsson

Heill þér sjötugum..

Hjartanlega til með daginn.. Takk fyrir allt.. Bestu kveðjur. Halldór

Halldór Jóhannsson, fim. 16. sept. 2010

hamingjuóskir með söfnunina

en Ómar, ég gaf þér pening, til þess að þú gætir í fyrsta lagi greitt niður skuldina. En í öðru lagi, svo að þú getir haldið áfram því mikilvæga hlutverki sem þú gegnir, að miðla þjóðinni upplýsingum um landið. Ef ég vill styrkja Grensáss þá geri ég það bara beint. Mér finnst ekki rétt að ég styrki þig til að styrkja Grensásinn. Þar að auki á skatturinn eftir að skattleggja þig til helvítis þannig að þú verður að fá það reiknað út hvað skattgreiðslan verður há og borga hana strax. Gangi þér allt í haginn snillingur

Einar Einarsson (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 16. sept. 2010

Berglind Berghreinsdóttir

"Hann á afmæli í dag...."

Hjartanlega til hamingju með daginn snillingur. Njóttu dagins vel. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur öllum. kv. Berglind

Berglind Berghreinsdóttir, fim. 16. sept. 2010

Friðrik Kjartansson

Það væri mér heiður...

Sæll og blessaður kæri Ómar, Vonandi hefurðu það gott:) Þannig er mál með vexti að ég er að koma mér upp bókabúð á netinu og vantar þar af leiðandi Íslenska rithöfunda til að lofa mér að reyna að selja bækurnar þeirra á þessari nýju og frábæru vefbókabúð. Þú hefur ýmislegt gott stundað um ævina kæri Ómar. En skrifað hefurðu og gefið út. Kannski værirðu fáanlegur til að hugsa málið hvort ég má selja fyrir þig í vefversluninni minni svo ekki sé nú talað um stiklurnar sem sitja mér í sinni eins og gull úr fortíðinni. Ef þú kannast ekkert við (kauða)mig þá þekkjum við báðir að ég er viss um Guðmud Hjalta Stefánsson á Tókastöðum 701 Egilsstöðum Með kveðju og von um góðar viðtökur Friðrik Kjartansson Miðgarði 7b 700 Egilsstöðum e-mail: elonfk@gmail.com

Friðrik Kjartansson, fös. 20. ágú. 2010

Video of volcano shockwaves

Dear Ómar, I work in the Education and Public Outreach group for Chandra X-ray Observatory, an X-ray telescope operated by NASA. We would like to show the fascinating video of the Iceland volcano showing shockwaves: http://www.ruv.is/frett/miklar-hoggbylgjur-i-gignum-myndir on our web-site, since there are close parallels to eruptions driven by a supermassive black hole in the center of a large galaxy. I believe that you shot this incredible video. Do we have permission to show it on our web-site and if so, what credit should we give? Also, do you have a copy of the video itself? I cannot get it from the website listed above and they have not responded to my emails. We would prefer to not include a link on our website to an outside source that may not be stable. We are planning a press release on August 17 or 18 about these galaxy-scale eruptions. I am happy to communicate with you by email if you like. Best wishes, Peter Edmonds

Peter Edmonds (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 4. ágú. 2010

Berglind Berghreinsdóttir

:)

Innilegar hamingjuóskir með söfnunina. Það gladdi mig mikið að sjá samstöðu fólks með þér og þínum (okkar allra)hugsjónum. Haltu þínu striki áfram. Guð geymi þig og þína.

Berglind Berghreinsdóttir, lau. 24. júlí 2010

Feimnismál á fjöllum!

Sæll Ómar. Ég tók mér það Bessa-leyfi að senda Blogg-grein þína um feimnismál á Fjöllum til alþingismanna- og kvenna. Ég vona að þú fyrirgefir mér framhleypnina en ég taldi þessa grein eiga erindi í það minsta til kvenna og karla á Alþingi. Fék ágætis viðbrögð frá nýliðum á Alþingi en þó sýnu best frá Birgittu Jónsdóttur þar sem hún hefur kallað eftir fundi Umhverfisnefndar. Eða með hennar orðum: ég hef kallað eftir fundi hjá umhverfisnefnd til að fjalla um þetta mál gott væri að fá hugmyndir um hverja skal kalla fyrir nefndina ég hef lagt til að fá Ómar Ragnarsson ef þér detta í hug einhverjir sem væri gagnlegt að fá á fundinn vinsamlegast láttu mig vita mikið var varað við þessu á sínum tíma en fáir lögðu við eyrun takk fyrir að vekja athygli bestu kveðjur Birgitta Get ekki hugsað mér nein annan mann til að vera málsvari Fjallkonunnar. Gangi þér vel

Þórður Runólfsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 20. júní 2010

Þar ríkir fegurðin

Sæll Ómar, er hægt að kaupa einhvern disk með laginu "þar ríkir fegurðin"? -Svavar

Svavar Jakobsson (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 19. júní 2010

Með tár í auga.

Þar ríkir fegurðin. Kæri Ómar þetta lag hefur algjörlega náð tökum á mér er nú búin að heyra það tvisvar í þættinum hennar Gerðar og langar að nálgast textan. Get ég fundið hann einhverstaðar. Kær kveðja. Anna G. Árnadóttir.

Anna G. Arnadóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 18. júní 2010

Í rökkurró

Sæll Ómar. Í gítargripum á netinu segir að þú sért höfundur lagsins Í rökkurró (Vornætur friður fyllir bæinn -)og The Platters hafi samið textann. Getur ekki verið, að þú sért þýðandi textans Twilight time, og the Platters séu höfundar lagsins. Eða kannastu kannske ekkert við þetta

Lára Halla Maack (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 26. apr. 2010

bílastæði

á þesssari síðu sérðu nokkur dæmi um það hversu mikið pláss jeppar taka í stæðum http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=27093&start=8625

Bjarki Hilmarsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 25. apr. 2010

Eyjólfur Jónsson

Framvöllurinn

Sæll, hvar ertu uppalinn nálægt Framvellinum? Ég er uppalinn á Hrauni við Kringlumýrarveg. Þar var Stóristeinn sem núna stendur upp á kant við hús sjálfstæðismanna (á lóðinni "Finnbogahús")svo voru það Hamrar,Berg,Hlíðardalur, Fagridalur, Lækjarhvammur(Einar bóndi)Seljaland, Þóristún, en ég er því miður farinn að gleima nöfnunum á þessum húsum eftir 40 ára fjarveru. Mannstu eftir "Hænsna Jónínu í holtinu fyrir neðan völlinn? og Imbu Belju?

Eyjólfur Jónsson, lau. 24. apr. 2010

Jón Halldórsson

Magnaðar myndir Ómar.

Þú bregst ekki okkur. Mig langar að vita hvort ég megi fá hjá þér nokkrar mynir af gosinu og setja þær inn á mína síðu sem er http://holmavik.123.is/ ég kemst ekki til að skoða þessa fegurð. Netfang mitt er jhh@simnet.is Ég er með myndasíðu líka sem er http://nonni.123.is/ Kv Jón Halldórsson Hólmavík S 892 2925

Jón Halldórsson, þri. 30. mars 2010

75 ára á morgun !

Sæll Ómar Pabbi minn er 75 ára á morgun og ég þarf nauðsynlega að koma honum í flug, á besta tíma dagsins, til að sjá gosið. Ef þú ert á ferðinni og getur bætt við þig 1-2 rössum -að sjálfsögðu gegn greiðslu- þá væri það góðverk aldarinnar. Viltu þá hafa samband í asbudin@gmail.com með vinsemd og von ;)

S.Garðarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 25. mars 2010

Eyvindur karpi

Hverfisfljót

http://www.pbase.com/osjonsson/hverfisfljot

Eyvindur karpi, lau. 13. mars 2010

Fallega lagt

http://leenks.com/gallery1154-17.htm Fallega lagt Olafur Auðunsson

Olafur Auðunsson (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 11. mars 2010

umræða um bílastæði fatlaðra

http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=43272

Bjarki Hilmarsson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 5. mars 2010

Kristján Agnar Ómarsson

Aðreinar

Ef allir aka á 60km meðfram aðrein er ekkert vandamál að aka inn á aðalbraut frá aðrein en flestir aka á 80 eða hraðar í átt að höfðabakka þar sem eru 2 eða fleiri akreinar í sömu átt ætti hámark að vera 60km á hægri akrein í þettbýli og Borg.

Kristján Agnar Ómarsson, sun. 28. feb. 2010

Sprengisandur á fólksbíl

Blessaður og fyrirgefðu að ég sé að nota þig sem ráðgjafa. En ég las frá þér færslu um jepplinga og jeppa og langar að heyra/lesa álit þitt á því að fara Sprengisand á fólksbíl að sumri til, er þetta út í hött eða er nóg að fara varlega? Um er að ræða óbreyttan Subaru Forester 2000 árgerð með sjálfskiptingu.

Gunnar Davidsson (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 23. feb. 2010

Drekka menn ... ?

Sæll Ómar Ég er að reyna að hafa uppi á vísu sem ég held að hafi verið ort í útvarpsþætti fyrir margt löngu. Og heyrt hef ég en sel það ekki dýrar en ég keypti að Helgi Sæm hafi ort. Ég held að vísan endi svona: "Drekka menn á Akureyri enn í gegnum Siglfirðinga." Og var þá verið að vísa til þess að ríki var löngum opið á Siglufirði á sama tíma slík verslun var ekki á Akureyri. Kannast þú við þennan kveðskap? EF svo er máttu gjarna senda mér línu á gummimux@simnet.is Kveðja, Guðmundur Brynjólfsson

Guðmundur Brynjólfsson (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 23. feb. 2010

Steingrímur H Steingrímsson

Hvadan

Hvadan nafnid kemur, átti ég vid.

Steingrímur H Steingrímsson, mán. 22. feb. 2010

Steingrímur H Steingrímsson

Laki

Sæll Ómar, getur tú svarad mér nafnid Laki kemur og hver er merking ordsins? (Eldfjallid Laki) Med kvedju, Steen

Steingrímur H Steingrímsson, mán. 22. feb. 2010

Gróa Hreinsdóttir

Hjálp :)

Sæll Ómar. Ég er að útsetja lagið Reykjavíkuljóð eftir Gunnar Þórðar ... hann sendi mér nótur í dag :) Ég var að reyna að skrifa textann upp eftir söngnum hjá Ragga Bjarna ... en mér gengur ekki nógu vel að heyra allt rétt. Áttu ekki þennan texta á tölvunni hjá þér? Ef svo er, viltu senda mér hann í tölvupósti á netfangið: groahreins@gmail.com Með kveðju, Gróa

Gróa Hreinsdóttir, lau. 6. feb. 2010

79 á stöðinni

Sæll Ómar, Var að horfa á 79 á stöðinni. Sést ekki í þig í byrjun myndarinnar? Það væri gaman að fá smá blogg um þetta og hverjir sitja með þér við borðið. Þessi mynd er góð og gaman að sjá Reykjavík 1962 með bensínstöð við Hlemm og skip í Daníelslipp. Nafnið sem er gefið á húsið vestur í bæ með kúlugluggunum þar sem daman býr er það tilbúið nafn? kveðja, LS.

LS (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 4. feb. 2010

Lagið hinumegin er frekar Lalli varamaður

getur það ekki verið að lagið sé Lalli varamaður, en ég er nú reyndar búin að ná mér í textann ég gróf bara upp 45 snúninga plötuna og skrifaði eftir hlustun og kom því svo á framfæri :) þú ferð nú ekki að rukka mig fyrir það ? er það nokkuð Ómar ? kv Guðný

Guðný Sig (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 1. feb. 2010

Lagið hinumegin á Jóa útherja

http://is.wikipedia.org/wiki/SG_537 Kveðja Hljómplötuklúbburinn Íslensk Tónlist

Kristján Frímann Kristjánsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 31. jan. 2010

texti

Sæll Ómar ! mig vantar svo texta sem mig minnir að þú hafir sungið inná plötu fyrir margt löngu og var stuðningslag til íslenska landsliðsins í handbolta man úr textanum " strákar tala saman í vörninni - (telja sig eftir ) taka á öllu og slappa aldrei af- djarfir brjótast inn úr hornunum ógna þeim með uppstökkum opna línur og skjóta þá i kaf ???? er það ekki rétt annars hjá mér að þetta er gamalt lag frá þér :) ?? gaman væri að fá textann sendan i meili (amman@simnet.is) kv Guðný

Guðný Sigurðardóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 20. jan. 2010

Stöndum með Kristni Err

Sæll Ómar.. Ég er mikill aðdáandi Kristins Err og nú er búið að sparka drengnum út af Morgunvaktinni á Rúvinu. Ég hef nú þegar mótmælt þessum gjörningi þar á bæ en það hljóta að vera ákaflega máttlaus mótmæli ef einungis ein miðaldra kona úr Vesturbænum lætur í sér heyra. Mig langar að fá þig í lið með mér. Hans er sárt saknað af mörgum, ég veit það. Orsnilld hans er svo einstök fyrir nú utan það hversu fallega íslensku hann talar þrátt fyrir langa dvöl í Spaníalandi. Bestu kveðjur, Filippía

Filippía Þóra (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 13. jan. 2010

Maria Elvira Méndez Pinedo

Þúsund takk fyrir meðmæli!

Sæl og blessaður Ómar, Þúsund takk fyrir þessi falleg orð sem þú hefur sagt um ér á bloginu hennar Lára Hanna. Personulega finnst mér vera luxus að geta tjað mig frjálslega núna um ESB eða Ice -save svo það er mjög gott að ég sé ekki komin í einhverju nefnd. Kæru kveðjur Elvira

Maria Elvira Méndez Pinedo, þri. 12. jan. 2010

Árni Þór Björnsson

Náttúra íslands

Ég dáist að þér fyrir framlag þitt til kynningar á landinu og jafnframt verndar. Ráðamenn eru ótrúlega skammsýnir og eins og engin skilji hvað óspillt náttúra og landslag er mikilvægt. Hátíðarkveðjur, Árni

Árni Þór Björnsson, lau. 26. des. 2009

Hornstrandastiklur

Gott kvöld Ómar. Var að fá mér Hornstrandastiklurnar á DVD og er búinn að renna yfir þær einu sinni og ég er mjög ánægður með efnið. Eitt er það sem mér finnst vanta og vera ljóður á annars ágætu efni. Engar upplýsingar eru um hvaða ár þessar myndir eru teknar né hvenær þættirnir voru sýndir á RUV. Getur þú frætt mig nánar um það með pósti á netfangið mitt? Bestu kveðjur Jóhannes

Jóhannes B. Ingason (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 20. des. 2009

Rúnar Júlíusson

Sæll Ómar. Eins og þú kannski veist, þá hefur verið gerð stytta af Hr. Rokk. Þú getur farið inn á Facebook Rúnar Hartmannsson og sennt mér beiðni ef þú ekki sér hana. Og eða sennt mér tölvupóst á runarhart@simnet.is

Rúnar Hartmannsson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 7. des. 2009

Guðmundur Benediktsson

Úps.

æ æ, hélt að þetta kæmi öðruvísi. þú klórar þig fram úr því.

Guðmundur Benediktsson, þri. 24. nóv. 2009

Guðmundur Benediktsson

Vísa

Sæll Ómar. Kannast þú við þessa vísu? Helvíti er Herðubreið, hrikalega ferleg. Upp á hana alla leið, einhvern tíma fer ég. Getur verið að hún sé eftir Sigurð Þórarinsson? Kveðja, Guðmundur Ben.

Guðmundur Benediktsson, þri. 24. nóv. 2009

sælir

mér finnst að þú mættir bæta myndum inn í myndaalbúmið afþví að ég veit að þú átt ógrynni að myndum og talla ekki um myndina af óla og tryggva við sleðanna og flugvélinni með snæfell í baksýn kv óli sleðamaður

ólafur jón jónsson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 23. nóv. 2009

netfang ?

Sæll Ómar, ég fann ómögulega netfangið þitt en langar til að senda þér póst varðandi þínar hugmyndir og framtíðarsýn. Kynni að meta ef þú hefðir samband á kristingri08@ru.is, svo ég kæmist í netsamband við þig.. :) kv. Kristín

Kristín (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 14. nóv. 2009

Jens Guð

Athugasemd

Vinsamlegast eyddu þessari athugasemd um leið og þú hefur lesið hana. Ég fann ekki netfang til að senda þetta á: Af því að þú skrifar alltaf frábæran texta vil ég lauma að þér eftirfarandi: Þegar ég varð blaðamaður á Alþýðublaðinu 1976 gaf Árni Gunnarsson, þáverandi ritstjóri, mér nokkur góð heilræði. Eitt var: Það á aldrei að setja punkt á eftir fyrirsögn.

Jens Guð, mið. 11. nóv. 2009

35 tommu dekk til sölu

ertu búin að selja dekkin sem þú auglýstir ??? sendu mér póst ef þú ert ekki búin að selja dekkin og verð emmit@simnet.is

Emanúel magnússon (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 10. nóv. 2009

pétur ásvallagötu 51 kynning á áhrifamesta manni kanada á 20 öldini

TOMMY Douglas hét kanadískur stjórnmála- maður. 1904-1986.( fæddur skoti) Hann var kosinn af kanadamönnum áhrifamestur og virtasti kanadamaðurinn á 20 öldinni- og fyrir hvað. Fyrir að henda út einkasjúkrahúslæknum og hafa kanadíska heilbrigiskerfið á 5 áratugnum í kanada og gera heilbrigiskerfið alfarið ríkisrekið. Því frá nixon árunum í bandaríkjunum þegar nixon lét einhverja pókerklíku nefnd eyðaleggja það litla sem eftir var á þeim ríkisrekstri sem eftir var í heilbrigis geiranum. Hann er í dag( Tommy D.)ein mesta martröð frjálshyggju manna vegna þess a 1983 þá eyða kanamenn 7% ríkisútgjalda til heilbrigismála og ná að sinna öllum ríkisborgurum kanada vel…börnum konum sem og utangarðsmönnum En bandaríkjamenn eyddu á sama tíma 9% ríkisútgjöldum til heilbrigismála en skildu 34 milljónir manna eftir án heilsugæslu og eftirlits.NÚNA ER ÞETTA MIKLU VERRA hjá sámi frænda. Tommy lá í heilt ár sem krakki á sjúkrahúsi vegna fóta meins -hann varð um tvítugt þekktur boxari í kanada ,tók seinna háskólagráður í hinum ýmsu háskólum og menntaði sig jafnframt og öðlaðist reynslu víðsýnt fyrir komandi foristuhlutverk. Gerðist síðar þekktur prestur og endaði sem þessi áhrifa mikli stjórnmálamaður.(sjá youtube tommy douglas on future of medicare( 1983)) Tendasonur Tommy er leikarinn gamli Dounald Sutherland þannig að Tommy er afi Keifer Sutherland. Annað skylduáhorf er myndinn SICKO Michael Moore hún kom mjér skemmtilega á óvart vegna þess að í þeirri mynd sleppir Michael M gríninu (að mestu)———–og er aðalega að bera saman heilbrigðiskerfi bandaríkjana, við kanada og önnur lönd. MJÖG FAGLEGA GERÐ MYND OG FRÆÐANDI.

pétur þormar (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 9. nóv. 2009

Dásemdir Hálslóns...

Sæll Ómar og þakka þér fróðlegar staðreyndir um Hálslón. Í júlíbyrjun í sumar var ég fararstjóri í hestahópi er ferðaðist meðfram Hálslóni. Við gistum í svokölluðum Sauðakofa sem er forn gangnamannakofi sem fluttur hefur verið, því lónstæðið hafði drekkt þeim stað er hann stóð áður á. Veður var eins og best verður á kosið skafheiður himinn og útsýn eftir því, Snæfell í austri og Kverkfjöll í vestri. Í morgunsólinni stefnum við í átt að lóninu og er við nálgumst það spyrja ferðamenn í forundran hvert við séum að stefna því fyrir framan okkur rís sandveggur til himins. Ég trúi varla mínum eigin augum en raunveruleiki vikjanaframkvæmdanna blasir við: Vatnsborð lónsins hafði lækkað um 3-5m í sumarþurrkunum og beggja vegna lóns voru ljósgrá rofabörð sem rauk úr eins langt og lónið var stórt, en það er eins og við vitum jafn stórt Hvalfirði! Þarna voru svo skurðgrafa og einmana vörubíll að reyna að bjarga hvurju..? Fólk er smalar þetta svæði að hausti hefur tjáð mér að ólíft sé þarna að vera ef blæs eitthvað að ráði, sökum sandfoks er fyllir vitin...

Vilborg Halldórsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 30. okt. 2009

Dásemdir Hálslóns...

Sæll Ómar og þakka þér fróðlegar staðreyndir um Hálslón. Svo vildi til fyrri hluta júlímánaðar í sumar, að ég var leiðsögumaður í hestahópi er ferðaðist meðfram Hálslóni. VIð gistum í svokölluðum Sauðakofa sem var forn gangnamannakofi en hafði verið fluttur því lónið drekkti þeim stað er hann var á áður. Veður var eins og best verður á kosið, skafheiður himinn og útsýn eftir því, Snæfell í austri og Kverkfjöll í vestri, en er við stefnum í átt að lóninu rís sandveggur upp til himins fyrir framan okkur. Ferðamenn spyrja í forundran hvað þetta sé og ég trúi varla mínum eigin augum... en þarna höfðum við raunveruleika virkjanaframkvæmdanna fyrir framan okkur: Vatnsborð lónsins hafði lækkað um 3-5 m í sumarþurrkunum og voru þar ljósgrá rofabörð beggja vegna lóns sem rauk úr eins langt og augað eygði. Við vitum að lónið er að flatarmáli jafn stórt Hvalfirði! Við lónsbakkann stóð svo ein einmana skurðgrafa og vörubíll sem voru þarna eins og krækiber í helvíti... og voru að reyna að bjarga hvurju? Menn er smala þetta svæði á hausti hafa tjáð mér að ólíft sé þarna að vera vegna sandfoks.

Vilborg Halldórsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 30. okt. 2009

contact

Dear Mr.Omar Ragnarsson I would like to support your work for nature and tourism-projects in Iceland. My name is Rolf Sørensen, I live in Germany. My profession is artist (sculpture, culture-projekts) and I work actually as trainer in outdoor-sports and bike-guide. I love nature and have experience in alpinism, mountaineering and climbing. I would like help to establish mountainbiking-trips and mountaineering by respecting untouched nature and social/öcologic tourism. I founded an outdoor-sport-scool here and offer adventure-tours by fair meanings. If you like to contact me, please use my email-adress rolf-soerensen@gmx.de Thank you very much, in hope of answer Rolf Sørensen

contact (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 23. okt. 2009

Sæll Ómar

Sæll Ómar Grétar Elvis heiti ég og mig langar til að óska þer til hamingju með þessa heimasiðu kveðja Grétar þór Grétarsson

Grétar þór Grétarsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 20. sept. 2009

Takk fyrir að opna augu okkar

Ómar þú ert þvílík hetja og átt allan heiður skilið fyrir að opna augu okkar fyrir landinu. Ég veit ekki hvar þessi þjóð væri stödd ef þú hefðir ekki sýnt okkur landið eins og þú gerir á þinn einstaka hátt. Þú hefur sterkt bakland eins og sýndi sig þegar þú stóðst fyrir göngunni niður Laugarveg en því miður eru stjórnvöld með bundð fyrir bæði og sjá lítið annað en stóriðju en við megum ekki gefast upp það verður að opna augu ráðamanna fyrir öllum þeim miklu möguleikum sem náttúran býður uppp á.

Þórdís G. Arthursdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 20. sept. 2009

Eiður Ragnarsson

Sæll Ómar

Ég itreka fyrirspurn mína um mydir úr ferð okkar um Hálslón sumarið 2007. Við félagarnir í Bjsv. Ársól höfum mikin áhuga á því að safna saman mynfum úr þessari ferð, ef einhverjar eru til.

Eiður Ragnarsson, sun. 20. sept. 2009

Innrás þjóðverja 1940

Sæll vertu. Ég tel mig hafa fundið hentugan innrásartíma haustið 1940. Það er á tímanum frá 13. til 28. október. Mestallan þennan tíma var vindur hægur og trúlega bjart veður flesta dagana við Kárahnjúka. Svo hagaði þannig til að þoka var dögum saman við Austfirði, en fjöll stóðu upp úr. Ef þú ert með einhvern söguþráð í huga þarf auðvitað að velja innrásardagana og leið herskipanna norður fyrir land og tíl Reykjavíkur. Mestallt sumarið var býsna leiðinlegt með sífelldum lægðagangi og óróa í veðri. Bestu kveðjur, Trausti

Trausti Jónsson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 16. sept. 2009

Lagið um Patreksfjörð

Sæll Ómar. Mamma mín minntist á það við mig að þú hefðir eitt sinn samið lag um Patreksfjörð sem henni þótti alveg óskaplega fallegt. Við búum þar og hana langar svo að finna textann en ég er búin að leita að honum á netinu og finn ekki. Gætir þú birt hann hérna á síðunni eða sent okkur hann í tölvupósti? Kærar þakkir, Hekla.

Hekla Ösp Ólafsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 15. sept. 2009

Feroza ´91

Sæll Ómar, ekki vill svo skemmtilega til að þú viljir selja Ferozuna þína? ég hef mjög gaman af gömlum ökutækjum, og ferðast mest um þessa dagana á 1979 árgerð af Puch Maxi 50cc, en það verður nú heldur svalt á henni í vetur :) kv Bjarni Eiríkur Þórðarson bjarni_eirikur@hotmail.com

Bjarni Eiríkur Þórðarson (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 25. ágú. 2009

Palina a Skardsa

Omar, Thanks much for the information. I can contact the RUV for further information. Thakka ther fyrir. Havdu thad gott. Vertu saell Erik

S.J. Erik Petursson (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 22. ágú. 2009

Ómar Ragnarsson

Örkin.

Svar til Jónasar Líndals. Ég keypti þennan bát, Sómajullu, 2006 til að sigla um Hálslón og mynda drekkingu Hjalladals. Á eftir að sigla til hins sama um fullmótað Kelduárlón. Báturinn heitir Örkin. Maður að nafni Bjartur hringdi í mig út af honum nýlega og hefur svipað í huga og þú. Bátinn þarf ég að hafa til taks á ný þegar myndin "Örkin" verður frumsýnd en ég er alveg til í það að einhver geti notað hann annar en ég, ef um það semst á þann hátt að viðkomandi fái allir eitthvað fyrir sitt.

Ómar Ragnarsson, fim. 20. ágú. 2009

Ómar Ragnarsson

Ég segi "Sís!"

Takk. Hélt reyndar að ég væri í samtökunum eftir að hafa hitt félaga þína oft og iðulega og selt þeim eina af Súkkunum mínum fyrir nokkrum árum. Konan mín á líka Súkkujeppa, sex ára gamlan.

Ómar Ragnarsson, fim. 20. ágú. 2009

Sæll vertu súkkubróðir

Komdu blessaður Ómar. Sævar Örn heiti ég og býð þig velkominn á meðal okkar í Samband Íslenzkra Súzuki jeppaeigenda. Heimasíða sambandsins er http://sukka.is

Sævar Örn Eiríksson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 14. ágú. 2009

örkin

er ég var upp við kárahnjúka stíflu um daginn sá ég bát sem þér voruð á við myndatöku hvernig er það eigið þér hann enn eða einhver annar langar nefnilega svoldið í hann

jónas líndal (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 11. ágú. 2009

Karl Birgir Þórðarson

já ómar minn almenningur er ekki metin mikils hér á landi.

Karl Birgir Þórðarson, þri. 4. ágú. 2009

Ómar Ragnarsson

Brúðkaupið.

Ef þetta var 1987 var það fyrir RUV og ef þeir finna þetta ekki þar er það bara týnt eins og svo margt annað. Ég hóf störf hjá Stöð 2 1. september 1988. Rámar í brúðkaup úti á Skaga sem ég fjallaði um. Sjálfur hef ég ekki skárri aðgang að svona efni en þeir sem bestir eru í að leita að svona efni á sjónvarpsstöðvunum.

Ómar Ragnarsson, mið. 29. júlí 2009

Ómar Ragnarsson

Ingólfsfjall.

Ég gerði fleiri fréttir um meðferðina á Ingólfsfjalli á sínum tíma en ég kann tölu á. Ég hratt málinu af stað og sýndi þetta allt saman ofan frá og neðan frá. Þetta mál er eitt af fjölmörgum sem ég hef helgað mér og eiga það sameiginlegt að það gerist ekkert, - þetta er eins og að klappa í stein. Það eru tæplega 3000 malarnámur á Íslandi og þegar ég tók fyrir eina þeirra um daginn, undir Hafnarfjalli, virtist ekki mikill áhugi á því. Líklega er ein malarnáma á hverja 100 Íslendinga ekki nóg.

Ómar Ragnarsson, mið. 29. júlí 2009

Ómar Ragnarsson

Pálína á Skarðsá.

S. J. Eric Petursson. The Icelandic State Broadcasting System owns the report I made about Pálína. I think I did it in 1982 or 83. The othe guy was not a song of a opera singer but son of the composer Jón Þórarinsson. His name is Rafn Jónsson. I can contact the person in RUV that handles request like yours if you wish. You can alson contact RUV and ask for this service.

Ómar Ragnarsson, mið. 29. júlí 2009

Ómar Ragnarsson

Pálína á Skarðsá.

S. J. Eric Petursson. The Icelandic State Broadcasting System owns the report I made about Pálína. I think I did it in 1982 or 83. The othe guy was not a song of a opera singer but son of the composer Jón Þórarinsson. His name is Rafn Jónsson. I can contact the person in RUV that handles request like yours if you wish. You can alson contact RUV and ask for this service.

Ómar Ragnarsson, mið. 29. júlí 2009

Hörmungarsaga Ingólfsfjalls og Landeigenda í Kjarri

Sæll Ómar.. Það er ótrúlegt hvað öllum er sama um misþyrmingu Ingólfsfjalls. Enginn segir neitt og ég veit ekki hvar þetta endar. Verður fjallinu að endingu bara mokað burt? Ég hef tekið saman smá atburðarás síðustu ára þegar það virtist sem fjallið fengi grið, áður en "skessan" var keypt. sjá rétta vefslóð http://blogg.visir.is/logicsociety/?vi=896#post-896

LS (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 26. júlí 2009

Hörmungarsaga Ingólfsfjalls og Landeigenda í Kjarri

http://blogg.visir.is/logicsociety/?vi=896#post-896 .

LS (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 26. júlí 2009

Palina a Skardsa, I Saemundarhlid i Skagafirdi

Greetings Omar My name is Saevar Jonatan Petursson (S.J.Erik Petursson), fra Reykjavik, presently living in Thousand Oaks, California. I know that some time ago, you discovered the farm Skardsa and Palina the resident owner, who lived there alone for decades. Back in the late 50s, two youg boys from reykavik were "i sveit" with Palina for several summers. The first was a sone of a Opera singer, by the name Briem (I think. Thir family ran the Reykajvik library. I was the second kid and I spent two summers with Palina. The time I spent there had an incredible effect on my life later on and I have a great fondness for tose memories. I would like to ask, - if possible, if you could send me any accessible web material or archives from your research and visits with Palina. I had been sent a copy of Mbl article you wrote about her and the farm, and I understand that you did a TV special on Palina and the farm. Any access would be greatly appreciated. Having left Iceland, - to work as a comedian, - in English on the Greek Chandris cruise ships, was greatly influenced by your early career. However I found it difficult to be funny in Icelandic, and ventured out into the world to be funny in English. It worked to a point, but I spent decades as an International Tour manager instead. Thanks for your consideration. Regards S. J. Erik Petursson erikpetursson@yahoo.com

S.J. Erik Petursson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 24. júlí 2009

Júlí 1989

Sæll Ómar Ég ákvað að senda þér línu hér... þar sem foreldrar mínir eiga 20 ára brúðkaupsafmæli í dag. Ég hafði samband við Rúv í vetur í þeim tilgangi að reyna að fá afrit af video upptöku sem þú tókst í brúðkaupi þeirra þann 15. júlí 1987, en það fannst ekkert. Brúðkaupið var í Skagafirði, Hjálmar Jónsson gaf þau saman. Datt svo í hug að leita til Stöð 2, varstu kannski að vinna þar þetta árið, er ekki enn búin að hafa samband þangað. Væri gaman ef þú gætir hjálpað mér með þetta. Kveðja, Árný (omarha@simnet.is)

Árný Sigtryggsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 15. júlí 2009

Ómar Ragnarsson

Líf, land og söngur.

Ég setti Líf, land og söng" inn í Stiklur sem voru seldar fyrir jólin í hitteðfyrra. Afsakaðu seint svar, Valdimar.

Ómar Ragnarsson, þri. 7. júlí 2009

Sendiherra Kínverja

Sæll Ómar, hefur þú séð einhverjar skýringar á því hversvegna þinn gamli vinnustaður RÚV skeit uppá bak, með því að segja undanfarna daga frá því að Kínverski sendiherrann sé farinn úr landi, þegar hann situr hinn rólegasti hér á landi, og Stöð2 flutti réttar fréttir af því ? Var fréttastofa Rúv meðvitað eða ómeðvitað að æsa upp landsmenn gegn kínverjum með þessum furðulega, ranga fréttaflutningi ?? Eiður Guðnason fv fréttamaður og sendiherra hálfskammaði Rúv fyrir þennan fréttaflutning, en var svarað með því að hann væri samt farinn, og hvernig hann vissi þetta. Mér finns að þú ættir að hafa skoðun á þessum fréttaflutningi þinna tveggja vinnustaða, þar sem Stöð2 á heiður af að hafa farið með rétt mál :) Kv, Hörður Geirsson

Hörður Geirsson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 8. júní 2009

Gamlar boxmyndir

Sæll Ómar, mig langar svo að vita hvort þú hafir einhverja hugmynd um hvað ég get fundið gamlar myndir af föður mínum, (enn hann hét Birgir Þorvaldsson og kallaður Biggi box) þegar hann var að keppa í boxi í gamla daga. með kveðju Guðrún Birgisdóttir. gunnabirgis@simnet,is

Guðrún Birgisdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 7. júní 2009

10 merkilegustu eldfjöll jarðsögunnar

Sæll Ómar Þú spurðir mig fyrir stuttu um slóðina á vef Discovery Channel þar sem tekinn hefur verið saman listi yfir 10 merkilegustu eldfjöll jarðsögunnar. Þar eru Grímsvötn á blaði en ekki önnur íslensk eldfjöll. Slóðin á vefsíðuna er: http://dsc.discovery.com/earth/slideshows/top-10-volcanoes/ Svona listar flokkast ekki undir ströng vísindi. Töluverð hugsun hefur þó verið lögð í þennan. Eldfjall er valið með hliðsjón því hvort það sé dæmigert fyrir tiltekna virkni eða hafi merkilega sögu. Grímsvötn eru hér á lista vegna gosa í jökli og sem upptök jökulhlaupa. Magnús Tumi Guðmundsson

Magnús Tumi Guðmundsson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 27. maí 2009

Eiður Ragnarsson

Hálslón sumarið 2007

Sæll Ómar, ég er að velta fyrir mér hvort að þú eigir ekki einhverjar myndir úr ferð okkar um Hálslón, þegar við fórum þarna inneftir til að sækja hana rósu þína..? Við félagarnir í Bjsv Ársól vildum gjarnan fá eitthvað af þeim til að eiga hér hjá okkur. Ef þú ert á ferðinni hér fyrir austan þá máttu endilega hafa samband. KvER

Eiður Ragnarsson, fim. 14. maí 2009

Teitur Haraldsson

Gula bókin

Sæll Ómar og takk fyrir pistlana þína. Þú ert svo skemmtilega fróður um íslenska sögu, það er engu líkt. Hefur notkun á “Gulu Bókinni” frá 1958 verið uppfærð og notuð af framsóknarmönnum nú í ný afstöðnum kosningum? Væri gaman að heyra þitt álit.

Teitur Haraldsson, fös. 1. maí 2009

Ljóð.

Áin sem forðum fann sér veg um flæður og heiðadali kliðaði hæg eða kastaðist fram um klungur og hamrasali. Hún söguna las í landið mitt ljóðin sín gróf í stálið. Efldi með skáldunum orðsins mátt og íslenska tungumálið. - Nú er hún þðgnuð og þjóðin með - "við þurfum að framleiða álið" .....

Hannes Sigurðsson (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 18. apr. 2009

Island

http://www.swedenabroad.com/Start____7545.aspx Sæll, fannst mér að hér væri mynd af Íslandi, en væri þakklát ef þú getur staðfest það.

ee (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 13. apr. 2009

Valdemar Ásgeirsson, Auðkúlu.

Sæll Ómar, takk f. síðast. Mig langar að eignast myndina þína Líf, land og söngur. Hvar get ég keypt hana ? Best er að senda e-mail; velar@emax.is eða hringja; 868-7951. Bestu kv. Valdemar.

Valdemar Ásgeirsson (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 26. mars 2009

Hvað á að gera við nemendur í iðnskólum?

Til hamingju með það að vera komin í flokk með Jóhönnu. Mundu bara það, að margir ( Ég tala um þúsundir ) bíða eftir Helguvík. Tæknifólk, tækniteiknarar (flestar konur) Iðnaðarmenn (flestir í hátækniiðnaði). Ég er að kenna tæknifólki s.s. konum sem læra tækniteiknun. Þær bíða eftir svona tækifæri. Þær ætla ekki að fara í það að teikna lopapeysur og spítur til að tálga út fyrir túrista. Þær vilja teikna alvöru verkefni sem skila miljörðum í þjóðarbúið. Það er fullt af konum sem eiga framtíð sína í því að við höldum áfram í hátækniiðnaði. Þú mátt ekki gleyma þessu þegar þú tekur þínar ákvarðanir. Hvað á ég að segja við mína nemendur? Flytjið til Noregs eða Dannmerkur. Við erum að framleiða fullt af hátæknifólki í dag. Komið nóg af öllu þessu fjármálafólki sem sett hefur þjóðina á hausinn. Ég er stoltur kennari sem framleiði fólk í hátækniiðnað sem skilar háum þjóðartekjum á mann. Á ég að hætta þessu?. Snúa öllum í það að fara að próna lopapeysur og tálga spítur fyrir túrista? Þú verður að svara þessu kallinn minn, ég hef yfir 70 manns sem ég þarf að svara og útskýra það sem framundan er. Erum við að fara út í það að tálga spítur og prjóna peysur? Álverið í Straumsvík skilaði í tekjuskatt, hærri upphæð en allur túristaiðnaðurinn á síðasta ári. Keypti þjónustu af yfir 800 aðilum fyrir yfir 5.000.000.000,-ISK á árinu. Þetta vill oft gleymast. Flestir þessir aðilar eru í Hafnarfirði. Þinn vinur. Björgúlfur Þorsteinsson P.S. Þú verður að svara mér.

Björgúlfur Þorsteinsson (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 28. feb. 2009

Miðjuferð 4x4

Sæll vinur. ég veit að félagar mínir í Ferðaklúbbnum 4x4 voru búnir að bjóða þér með í ferð eftir rúma viku að Miðju Íslands. Ég vill endilega fá þig með, þú hefur gott af því að fara með mér í smá bíltúr á Benz... Enda langt síðan að við fórum saman í bíl síðast. Sennilega um 20 ár. Þá varst þú eini íslandsmeistarinn í ralli í þeim bíl. Og það hlítur bara að vera betra að vera með tvo rallmeistara í einum bíl... Endilega hafðu samband, kv Páll Halldór 664 2103

Palli (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 25. feb. 2009

Loðnu kvótinn.

Sæll: ómar ég er þeirrar skoðunnar að loðnan eigi að njóta vavans nú og næstu tvö árin. Ég hef verið sjómaður frá 1975. til dagsins í dag, og mér hefur fundist í slæmum árum hreinlega að skypstjórar loðnubátana trompist ef lítil loðna er.Veit þetta rýrir tekjur fyrirtækja og þjóðar.Hef orðið var við að fiskur hefur fært sig af hefðbundnum fiskimiðum vegna fæðuskorts síðustu árin þá sérstaglega eftir að menn fóru að nota troll til veiðana. Trollið í loðnu og síld vil ég banna, þegar trollið í þessar veiðar voru leifðar fór allt niður í stofnstærð þessara stofna og ég hef grun um þaug veiðafæri hafi gengið af stofni í loðnu nánast dauðri kanski oðrum tegundum líka. Ég er nú hættur á sjó í bili en vonast til að við sýnum okkar helstu auðlind smá virðingu og leyfum henni að njóta vavans. Kveðja Magnús Árni Gunnlaugsson. Akranesi.

Magnús Á Gunnla (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 21. feb. 2009

Hengilsvæðið mengunn

Sæll Ómar ég hef verið að velta því fyrir mér afhverju er ekki gufan frá virkjuninni kæld niður og þétt svo það væri hægt að dæla henni niður í grunnvatnið . Þá væri þetta endurnýtanlegur orkugjafi. Og þar að auki losnum við við brennisteins mengunn. Hér er myndband sem ég rakst á sem útskýrir svona búnað. http://www.youtube.com/watch?v=kjpp2MQffnw

Brynjúlfur Jóhannsson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 20. feb. 2009

Upplifunarferðamennska

Upplifunarferðamennska í þeim anda sem þú lýsir er alveg klárlega eitthvað sem höfðar til margra. Ég er svo heppinn að hafa starfað við fljótasiglingar hér á landi. Jafnframt því að stýra gúmmítuðrunum nokkuð klakklaust deildi ég jafnan jarðfræðikunnáttu minni meðal áhugasamra þegar kostur var, oftast við ágætis undirtektir, jafnvel þótt ferðalangarnir byggjust síst við að læra um innskotslög, myndun stuðlabergs eða móhellna. Allavega...þarna gefst fólki kostur á að sjá ótrúlega mikið af jarðfræðilegum fyrirbærum á þægilegan og aðgengilegan hátt. Upplifunarferðamennska er alveg örugglega framtíðin, þar sem upplifun almennt er að verða sífellt meira skorin við nögl í þéttbýli nágrannalanda okkar, svo öfugt sem það hljómar kannski.

Grímur Jónsson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 18. feb. 2009

Þráinn Jökull Elísson

Mega vandræði.

Ég sem var búinn að setja þetta svo flott uppp.Hnuss. En svona er það, bæði er tölvan að stríða mér og svo er ég heldur ekkert of klár í tölvufræðum. Þar til næst.

Þráinn Jökull Elísson, mán. 9. feb. 2009

Þráinn Jökull Elísson

Textaþýðing.

Sæll Ómar. Værirðu nokkuð fáanlegur til að snara eftirfylgjandi texta yfir á ensku? Ég yrði þá fáanlegur til að syngja hann fyrir þig og vonandi fleiri-og glamra undir á tólf strengja gítarinn minn.Bestu kveðjur. Í draumi sérhvers manns er fall hans falið. Þú ferðast gegnum dimman kynjaskóg af blekkingum, sem brjóst þitt hefur alið á bak við veruleikans köldu ró. Þinn draumur býr þeim mikla mætti yfir að mynda sjálfstætt líf, sem ógnar þér. Hann vex á milli þín og þess, sem lifir, og þó er engum ljóst, hvað milli ber. Gegn þinni líkamsorku og andans mætti og öndvert þinni skoðun, reynslu og trú, í dimmri þögn, með dularfullum hætti rís draumsins bákn og jafnframt minnkar þú. Og sjá, þú fellur fyrir draumi þínum í fullkominni uppgjöf sigraðs manns. Hann lykur um þig löngum armi sínum, og loksins ert þú sjálfur draumur hans. Í draumi sérhvers manns er fall hans falið. Þú ferðast gegnum dimman kynjaskóg af blekkingum, sem brjóst þitt hefur alið á bak við veruleikans köldu ró. Þinn draumur býr þeim mikla mætti yfir að mynda sjálfstætt líf, sem ógnar þér. Hann vex á milli þín og þess, sem lifir, og þó er engum ljóst, hvað milli ber. Gegn þinni líkamsorku og andans mætti og öndvert þinni skoðun, reynslu og trú, í dimmri þögn, með dularfullum hætti rís draumsins bákn og jafnframt minnkar þú. Og sjá, þú fellur fyrir draumi þínum í fullkominni uppgjöf sigraðs manns. Hann lykur um þig löngum armi sínum, og loksins ert þú sjálfur draumur hans. P.s. Þessi texti hans Steins Steinars er löngu orðinn sígildur.

Þráinn Jökull Elísson, mán. 9. feb. 2009

Steini Thorst

Ingemar Johansson boxari

Af því að ég veit að þú hefur áhuga á þessu :) http://steini69.blog.is/blog/steini69/

Steini Thorst, þri. 3. feb. 2009

Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Sæll Ómar

gaman að lesa þína síðu áfram Ómar

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, mán. 2. feb. 2009

Sigfús Þ. Sigmundsson

Bankanúmer

Sæll Ómar Vil hvetja þig til þess að gefa upp bankareikning hér á síðunni þinni svo við sem viljum styrkja þig í að klára heimildarmyndina um Kárahnjúkavirkjun getum lagt inná þig. kk., Sigfús

Sigfús Þ. Sigmundsson, mið. 28. jan. 2009

Steini Briem

Nýárskveðja

Óska þér alls hins besta á nýju ári og takk fyrir árið sem er að líða.

Steini Briem, mið. 31. des. 2008

Ólafur Guðjónsson

Sæll Ómar ! Ég sem lítill drengur fékk að fara með miklum afreksmanni oft á Melavöllinn í kringum 1966-1968. Hann var þá um fertugt.Að mig minnir setti hann 10 íslandsmet á þessum árum.Þá á ég við Guðmund Hermannsson fyrverandi lögregluþjón og kúluvarpara.Þú sérð þá Ómar að aldur er afstæður.Ég man þegar hann setti eitt íslandsmetið var sagt allt er fertugum fært. Þetta er hugleiðing varðandi þitt blogg um aldur íþróttamanna.Hafðu það sem allra best um áramótin. PS. Ég var í unglingavinnuni 1965 þar kynntist ég strák sem bauð mér heim til að að hlusta á Rolling Stones hann átti allar plötur með þeim á þessum tíma.Þetta var Áskell Másson,þegar ég var búinn að fá nóg af Stones þá sá ég plötu með Ómari Ragnarssyni og bað hann um að spila hana sem hann og gerði,þetta þótti mér flott. Við vorum í unglingavinnunni undir handleiðslu Sigvalda danskennara,góður maður þar. Við reyttum arfa á við Miklubraut og víða.Þegar leið að hausti voru nokkrir útvaldir sendir upp í Grafarholt og týna seina úr golfvellinum. Þá sótti okkur skemmtilegur maður sem hét Ragnar sem var faðir þinn. kær kveðja

ÓLAFUR GUÐJÓNSSON (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 29. des. 2008

Húsaleiga?

Sæll Ómar ég er ekki bloggari, en langar óskaplega til að komast að því hvað Landsbankinn hefur greitt fyrrverandi bankastjóranum fyrir ráðgjöf og ekki sýst hvað er hann að greiða í húsaleigu ef hann er inni á gafli hjá Landsgankanum???? bjul@simnet.is

Björn Júlíusson (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 18. des. 2008

Áfram Ómar!

Finn alltaf til svo mikils þakklætis þegar ég les greinar þínar og heyri þig tala - sakna raddar þinnar og fræðslu úr sjónvarpinu! - Örlygur

Örlygur Kristfinnsson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 17. des. 2008

Tekstinn við lagið "Ó þú"

Sæll Ómar Er að spila og syngja öðruhvoru "Ó þú". Er að velta fyrir mér orðinu "Dagstyggur". Finn það hvergi í orðabók. Hvað merkir það? Með bestu kveðju Richard

Richard Hansen (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 7. des. 2008

Ásta Steingerður Geirsdóttir

:)

Jæja,jæja :)Loksins þega boðin fara í gegn þá hafa þau fjölgað sér. Það er eflaust til að bæta upp brasið við að svara á linknum í póstforritinu :) ekki er það klaufaskapur, svo er víst :) :)

Ásta Steingerður Geirsdóttir, sun. 30. nóv. 2008

Ásta Steingerður Geirsdóttir

Þrautalending:)

Sæll vertu Ómar. Ég fékk boð frá þér á netpóstinn minn en tel nú að hann hafi verið öðrum ætlaður þar sem þú heilsar "heill og sæll" :) Allt er það nú gott og blessað. Ég burðaðist við að svara á linknum í póstforritinu en það gekk ekki upp, hversu oft sem ég reyndi. Þessvegna sendi ég þessar línur hér. Ég er ein af þeim sem staðið hafa vaktina frá byrjun í mótmælunum, nema þessa helgina þar sem ég var á Egst að fylgja vini til grafar. Það sótti nú á mig órói um það leiti sem fundur átti að hefjast á Austurvelli. Erfitt að vera ekki með. Leitt að heyra að fækkað hafði frá síðustu helgi. Við VERÐUM að halda áfram að mæta. Við MEGUM EKKI láta þetta fólk komast upp með það að sitja áfram. Ég hitti baráttufólk eystra og hvatti það til að hefja fundarherferð í anda þess em hefur verið hér syðra. Ég vona að það gangi eftir. Það er nefnilega lag nú að byggja upp réttlátt þjóðfélag.Kannski ekki ólíkt því og Lasse Tennander sagði í texta sem Bergþóra okkar Árnadóttir söng hér á árum áður :) Bestu baráttukveðjur. Ásta Steingerður

Ásta Steingerður Geirsdóttir, sun. 30. nóv. 2008

Ásta Steingerður Geirsdóttir

Þrautalending:)

Sæll vertu Ómar. Ég fékk boð frá þér á netpóstinn minn en tel nú að hann hafi verið öðrum ætlaður þar sem þú heilsar "heill og sæll" :) Allt er það nú gott og blessað. Ég burðaðist við að svara á linknum í póstforritinu en það gekk ekki upp, hversu oft sem ég reyndi. Þessvegna sendi ég þessar línur hér. Ég er ein af þeim sem staðið hafa vaktina frá byrjun í mótmælunum, nema þessa helgina þar sem ég var á Egst að fylgja vini til grafar. Það sótti nú á mig órói um það leiti sem fundur átti að hefjast á Austurvelli. Erfitt að vera ekki með. Leitt að heyra að fækkað hafði frá síðustu helgi. Við VERÐUM að halda áfram að mæta. Við MEGUM EKKI láta þetta fólk komast upp með það að sitja áfram. Ég hitti baráttufólk eystra og hvatti það til að hefja fundarherferð í anda þess em hefur verið hér syðra. Ég vona að það gangi eftir. Það er nefnilega lag nú að byggja upp réttlátt þjóðfélag.Kannski ekki ólíkt því og Lasse Tennander sagði í texta sem Bergþóra okkar Árnadóttir söng hér á árum áður :) Bestu baráttukveðjur. Ásta Steingerður

Ásta Steingerður Geirsdóttir, sun. 30. nóv. 2008

Tinna Ósk Grímarsdóttir

Frábært blogg!

Sæll Ómar, Flott blogg hjá þér! Kær kveðja, Tinna Ósk Grímarsdóttir www.mommur.is (Afmælisvefurinn!)

Tinna Ósk Grímarsdóttir, mið. 19. nóv. 2008

Gunnar Helgi Eysteinsson

Fyrirspurn

Sæll Ómar, Mig langar að koma með smá tillögu en það var ómögulegt að finna netfangið þitt. Mér þætti vænt um ef þú gætir send mér það. Með bestu kveðju, Gunnar H. Eysteinsson eysteinsson@compaqnet.se

Gunnar Helgi Eysteinsson, mán. 17. nóv. 2008

Bananalýðveldi ???

Sá þig í hjá Agli í gærkvöldi, þú´notaðir samlíkingu við flug, ég tók einu sinni í að læra flug fyrir margt löngu, var farinn að fljúga sóló, varð ekki meira úr. Mér er hins vegar minnisstætt hve mikil áhersla var lögð á að vera viðbúinn hinu óvænta í fluginu því annars getur ráðrúm til aðgerða verið lítið þegar á reynir. Þetta áttu ráðamenn auðvitað einnig að gera, þeir skýla sér bak við að "þetta sá enginn fyrir". Í fyrsta lagi er það rangt, margir sáu þetta fyrir, í öðru lagi þá skiptir það ekki máli, það verður að gera þá kröfu að menn séu viðbúnir því óvænta og láti ekki þær aðstæður skapast sem nú hefur gerst. Síðan ber enginn ábyrgð og menn sitja sem fastast bæði kjörnir fulltrúar þjóðarinnar og embættismenn, er nema von að evrópuþjóðum finnist að þurfa að kenna íslendingum lexíu? Það er verið að flengja okkur, hvorki meira né minna!!

Benjamín Bjartmarsson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 17. nóv. 2008

Finnska leiðin og ESB

Góði Íslendingur. Þinn ferill er okkar þjóð mikils virði á þessum válegu tímum, þegar ríkjandi valdhafar berskjalda nú vanhæfi sitt til bjargar reisn Íslands, sem aldreigi hefur lotið lágr. Þessir valdhafar eru nú þegar búnir að jarða sinn eftirmála. Mig langar til að benda þér á að lesa eftirfarandi: Rakst á slóðina "tilveran-i-esb.blog.is" í mbl.is, þar sem Gunnar Rögnvaldsson, sem rekið hefur ráðgjafafyrirtæki í Danmörku í yfir 20 ár, skrifar um ofangreint efni. Það er ekki uppörvandi fyrir þá Íslendinga, sem vilja sækja um inngöngu í ESB. Vona að þú hafir tíma til þess að rýna í þennan texta. Utan þessa, sem er mjög áhugaverð lesning, þá hefi ég undrað mig lengi á þeirri þráhyggju "ráðamanna", að eina úrlausnin í atvinnumálum á Íslandi s.l. 30 ár, sé öflun raforku fyrir mengandi framleiðslu áls í sem flestum héruðum landsins, án frumkvæðis sömu afla til þess að snúa sér að þjóðlegri uppbyggingu með þeim krafti sem býr í okkar velmenntuðu ungu kynslóð sem getur allt, ef hún er ekki halastýfð af þessu "andskotans pólitíska pakki", sem hér hefur riðið húsum án nokkurra verðleikla. Fyrirgefðu orðbragðið. Kveðja, enn einn aðdáandinn, á svipuðum aldri og þú.

Sveinn Sveinsson (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 11. nóv. 2008

Íslandshreyfing í framboð

Kæri Ómar. Ég skrifa í angist minni vegna ástands okkar íslendinga í dag. Ástands sem skapast hefur vegna græðgi og spillingar auðmanna og alls ekki síður stjórnmálamanna. Síðustu vikur hef ég fylgst með málum agndofa en ávallt haft þá vonarglætu um að einhver komi okkur til bjargar. Með hverjum deginum verður sú von minni og minni. Hver hneykslisfréttin á fætur annari dynur yfir okkur og virðist engan endi ætla að taka. Og reiðin blossar upp. Bálið er tendrað í þjóðfélaginu og óvíst er hvort sá eldur verður stjórnanlegur ef ekkert verður aðhafst. Það er augljóst að kjósa verður á ný því núverandi ríkisstjórn hefur blóð almennings á höndum sér. Þar á ég ekki síður við Samfylkingu sem ber enga minni ábyrgð en Sjálfstæðisflokkurinn. Þau létu þetta viðgangast þrátt fyrir ítrekaðar skýrslur hagfræðinga og annarra um hvað væri í vændum. En ef til kosninga kæmi, hvern ætti að kjósa? Samfylkingu sem segir eitt og gerir annað? Hvernig væri hægt að kjósa Sjálfstæðisflokkinn sem leiddi okkur í þennan ormapytt! Vinstri græna sem berjast jú gegn einkavæðingunni og ný-frjálshyggjunni en á sama tíma vilja ekki evruna og meðfylgjandi inngöngu í Evrópubandalagið! Ekki þó Framsókn sem samstíga Sjálfstæðisflokknum hefur greitt veginn fyrir ógöngum Íslands! Frjálslynda flokkinn... segir nafnið ekki allt sem segja þarf? Við síðustu alþingiskosningar kaus ég Íslandshreyfinguna. Mér fannst þið nýr andvari og nauðsynleg vegna umhverfisverndarstefnu ykkar. Það var leitt að fylgi ykkar reyndist ekki meira. Ég tel að þið höfðuð andlegan stuðning margra þó að flestir kusu með fullvissu að atkvæði þeirra myndu falla dauð niður og því fóru þau atkvæði til stjórnarandstöðuflokkanna. Nú eru tímarnir aðrir. Nú þarf virkilega uppstokkun í lýðræðinu eigum við að verða trúverðug á heimsvísu. Því biðla ég til þín og þinna um að berjast fyrir hönd hins almenna íslendings, þá ungu, þá öldnu, þá ófæddu og nýfæddu. Ég hef traust til þín og tel þig góðan mann. Góða menn vantar í ríkisstjórn. Með kærri kveðju, Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir.

Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 6. nóv. 2008

Sjálfstætt Ísland

Sæll Ómar Við vorum kannski slegin niður en 'bardaginn' er ekki búinn. Er nú ekki lag að byggja upp sterkara og sjálfstæðara Ísland en nokkru sinni fyrr þó slíkt megi kannski hljóma undarlega nákvæmlega á þessari stundu? Máske ég játi það? En jarðvegurinn er fyrir hendi. Ég vil t.d. sjá í framtíðinni að við fáum inn rafmagnsbíla eða skip knúin innlendri orku. Ég vil sjá sterkari landbúnað þar sem við framleiðum okkar matvæli talsvert mikið sjálf. Ég vil vernda landið. Og ég vil síðast en ekki síst sjá fjölskylduvænt Ísland þar sem lögð er áherlsa á fjöldskylduna en ekki kapphlaup eftir vindi. Kannski eru þetta aðeins draumsýnir en allt byrjar þar. Við getum sagt að allt byrji með draumum og draumsýnum. Það er hins vegar undir okkur komið að láta þær draumsýnir rætast. Kveðja Þorsteinn Ólafsson energy@simnet.is

Þorsteinn Ólafsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 26. okt. 2008

Hafa samband strax við Jakob!

Heill og sæll Ómar. Ég hef ítrekað sent SMS skilaboð til þín og beðið þig um að hafa samband (Jakob 8627127) vantar aðstoð þína tengt vissu ferðmáladæmi..:). Netfangið mitt er (fun@simnet.is) - Hvað er þitt netfang? Sendu mér einnig netpóst þannig að ég geti sent á þig! Takk og gangi þér ávalt vel...:). kv. Heilbrigð skynsemi -Jakob Þór

Jacob Thor Haraldsson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 20. okt. 2008

Til hamingju með verðlaunin

Sæll Ómar, innilega til hamingju með verðlaunin sem þú verðskuldar af heilum hug, gangi þér allt í haginn, kveðja Tómas J. Knútsson

Tómas J. Knútsson (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 16. okt. 2008

Til hamingju með verðlaunin frá Seacology

Það var ánægjulegt að geta verið viðstaddur verðlauna afhendinguna í San Francisco í gærkvöldi. Gaman að sjá að störf þín hafa vakið alþjóðlega viðurkenningu; fyrir að vekja athygli á nátturuperlum Íslands og hvað það er áreiðandi að fara vel með þessa auðlynd. Bestu kveðjur, Gisli Hermannsson, San Jose, Kaliforniu.

Gisli Hermannsson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 3. okt. 2008

Icelandic Media Corporation - Íslenskt Vefblogg

almennileg , ekta gestabókarskrif.

Kæri Ómar, Nú er kominn tími til fyrir mig að hætta að þröngva mér upp á þessa fallegu vefsíðu og bestu vefsíðu allra íslenskra internet vefsíðueigenda , og skrifa í gestabókina almennilega og þakka þér kærlega fyrir að leifa mér að heimsækja vefsíðuna því þetta gengur ekki lengur svona hjá mér. Næsta skref hjá íslensku þjóðinni er að tryggja öryggi sitt gagnvart þeirri ógn sem ríkisstjórnir þær sem reynt var að mynda frá falli Viðeyjarstjórnarinnar hafa valdið. Svo virðist sem að annað eins tækifæri og það sem okkur hlotnaðist þegar Vigdís Finnbogadóttir var við völd komi ekki aftur og því verðum við að læra mun betur af þeirri reynslu heldur en við höfum gert hingað til. Vigdís stóð sig best allra leiðtoga sem nokkurn tímann hafa verið uppi fyrr og síðar á 20. öld að mínu mati , og nú þurfum við að finna aðrar leiðir til að tryggja eðlilega framvindu umhverfis - og heilbrigðismála hér á landi. Við verðum að hætta að vera vitleysingar og haga okkur eins og ég hef gert þegar ég hef verið æstur og með leiðindi við fólk og dónaskap. Við komum fólki til valda sem við gátum ekki treyst , við erum búin að súpa seyðið af því og nú verðum við að svipta það fólk þeim stöðum sem það hefur gegnt síðan þá því að þau sviku okkur. bestu kveðjur, Ásgeir Valur

Icelandic Media Corporation - Íslenskt Vefblogg, mið. 1. okt. 2008

Aukið umferðaröryggi

Sæll Ómar. Ég er með ákv. hugmynd um hvernig megi auka umferðaröryggi á Íslandi. Ég bý í Noregi og hef viðrað hugmyndina hér, enn gaman væri að heyra hvað þér finnst um þetta. Mig vantar netfangið þitt. Ég er með: binni56@hotmail.com

Brynjar Eiríksson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 26. sept. 2008

Heill Og Sæll 'Omar

Við erum hljómsveit úr vestmannaeyjum sem er að fara að taka upp plötu.Við erum með eitt erlent lag á sk´ra hjá okkur.Okkur vantar íslenska texta við lagið,þess vegna ákváðum við að leita til þín þar sem þú ert einn af bestu textahöfundum landsins.Þetta er gamli Styx smellurinn Boat on the river.Vonandi getur þú svarað okkur með þetta .email :helgitorshamar@gmail.com Kær Kveðja Helgi www,myspace.com/afrek

Helgi Torshamar (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 6. sept. 2008

kveðja

takk fyrir síðast þegar þú kórónaðir brúðkaúpið okkar á hótel örk 16 des 2005 og gangi þér allt í haginn kveðja Þórhildur Kjærnested og Kristinn Friðjónsson.

kristinn Friðjonsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 31. ágú. 2008

Teigskógur

Sæll Ómar! Mig langar til að athuga hvort þú (eða einhver annar) hefur gert fræðslumynd um Teigskóg og hvar ég get þá nálgast það? Kveðja, Hansína Hafsteinsdóttir

hansína (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 7. júlí 2008

Húnbogi Valsson

Aðdáandi þinn frá því ég man fyrst eftir mér

Sælll og blessaður. Ég man fyrst eftir þér sem poppstjörnu þegar ég var fimm ára. Ég er fæddur 1960. Mig mynnir að það hafi verið 1966 þegar ég fór á einhverja hátíð að Laugum í Reykjadal í Þyngeyjarsíslu til að sjá stjörnuna. Einhverjir spurðu, þegar nokkrir menn voru að bera píanó in á sviðið, "Hver er þessi rauðhærði þarna?". Það kom í ljós að þetta var stjarnan sem við vorum búnir að þekkja svo lengi en vissum ekki hvernig leit út. Ég hef hitt þig við ólíklegustu tækifæri síðan og átt við þig spjall sem ég met mikils. Með vinsemd og virðingu. Þinn aðdáandi: Húnbogi Valsson,

Húnbogi Valsson, fim. 19. júní 2008

Jón Þór Benediktsson

NSU Prins

Sæll Ómar og afsakaðu framhleypnina en málið er að mér skylst að við eigum eitt sameiginlegt. Þannig er mál með vexti að ég er með gamlan trébát sem hefur verið í endurnýjun hér norður í Eyjafirði. Startarinn er bilaður en hann er svokallaður Dino Start eins og mér skylst að sé í NSU Prins. Þú ert þekktasti eigandi slíkrar bifreiðar svo ég ákvað að skrifa þér og forvitnast hvort þú vissir um slíkt tæki þ.e startara eða hvar ég ætti að leita eftir slíku. Ég er með gamla (196?) Volvo Penta MD2 sem er 18-22 ha mótor með' svona startara reimdrifinn dínamór/startari. Með von um viðbrögð Kv Jónþór Ben.

Jón Þór Benediktsson, mið. 28. maí 2008

Tengill

Sæll Ómar er með tillögu: http://ngm.nationalgeographic.com/2008/03/iceland/del-giudice-text Gerdur Ragnarsdottir

Gerdur Ragnarsdottir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 28. maí 2008

Mannlífsstiklur

Sæll Ómar Faðir minn er að leita að þessarri bók eftir þig. Veistu hvar hann getur keypt hana? Kveðjur, Stefán Haraldsson.

Stefán Haraldsson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 21. maí 2008

Leiðrétting?

Sæll vertu Ómar! Vil aðeins benda á að"Þá væri Sjáland sælla hér" er ekki eftir Jónas.Kvæðið er eftir Þorstein Erlingsson og heitir "Fossaniður". Með kveðju J.H.E.

Jóhannes Harry Einarsson (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 17. maí 2008

Himmalingur

Ljósadýrð í Þrengslum!

Kæri Ómar:Eins og þú trúlega veist á nú að gera enn eitt umhverfisslysið.Það er að lýsa upp Þrengslin.Tugir bíla fara þar út af á hverju ári. Þökk sé vöntun á ljósastaurum að þar hafa hingað til ekki orðið alvarleg slys.Fjölmargir íbúar í Þorlákshöfn hafa miklar áhyggjur af þessum framkvæmdum.Hvað er hægt að gera?Hvernig er þetta erlendis?Einnig langar mig að vita miðað við staðla í öðrum löndum hvort Þrengslavegur er ekki allt of mjór?

Himmalingur, lau. 3. maí 2008

Draumalandið

Sæll Ómar, Ég fann gamlar VHS spólur í kassa og á þeim voru gamlir þættir sem þú gerðir fyrir Stöð 2 1990 og hétu Draumalandið. Það þarf að gefa þetta út á DVD. Ég hafði mikið gaman af.

Snorri B. Jónsson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 2. maí 2008

Herbert Guðmundsson

NETFANG

Spyr um netfang þitt. Eða ertu álíka fatlaður og Davíð í netbréfakerfinu? Rámar í það. Ef ekki eða þú hefur komist yfir vandamálið er netfangið mitt: 007spori@mi.is. Herbert Guðmundsson fv. flest mögulegt.

Herbert Guðmundsson, fim. 1. maí 2008

Hálendiskveðja

Sæll Ómar, áhugavert blogg hér á ferð. Mig langar að senda þér lag og texta, ertu með e-ð netfang fyrir svoleiðis:)?? kv Ása

Ása Birna (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 30. apr. 2008

Þökk

Vildi þakka þér fyrir falleg orð sem þú lætur falla í garð mömmu í blogginu þínu "mestu hetjurnar". Kær kveðja, Ingibjörg Friðriksdóttir

Ingibjörg Guðný Friðriksdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 11. apr. 2008

Fyrirspurn

Sæll Ómar - ég sá grein í greinasafni mbl þar sem Davíð örn Jónsson segir að þú hafir bent á það eftir kosningar að lög um fjármál stjórnmálaflokka séu hamlandi fyrir ný framboð. Ég er að leita af heimild þar sem ég get vitnað beint í þessi orð þín. Manstu nokkuð hvar ég gæti fundið þau. Kv. Alda. email: aga1@hi.is

alda (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 9. apr. 2008

Kristbjörg Þórisdóttir

Eldhugi sem nýtir orkuna rétt

Þú ert eldhugi Ómar og ég fylgist alltaf með þér og því sem þú hefur að segja. Umhverfismál eiga að skipa mun stærri sess en þau gera í pólitík. Ég tek ofan af fyrir þér og þeim fótsporum sem þú hefur skilið eftir þig. Það hefur enginn Íslendingur sýnt eins vel í verki hversu mikið hann ann náttúru landsins okkar. Ég ann Íslandi einnig af öllu hjarta og vil hvergi annars staðar búa. Takk fyrir að nýta mikla orku þína í þágu landsins.

Kristbjörg Þórisdóttir, þri. 8. apr. 2008

steinimagg

Takk

Takk fyrir alla gleðina sem þú hefur veitt mér í gegnum árin, hún er ómetanleg.

steinimagg, lau. 5. apr. 2008

Sammála síðasta ræðumanni

En þú ert ekki síður listamaður og hefur gert kraftaverk á flestum sviðum. Ég er stolt af að vera Húnvetningur eins og þú! Bestu kveðjur frá Sigrúnu á Spáni

Sigrún (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 19. mars 2008

Ólína Þorvarðardóttir

Heill og sæll félagi.

Kvitta hér með fyrir komu minni á síðuna. Takk fyrir umhverfisumræðuna - ég er alltaf sammála þér í þeim málaflokki. Sé að þú hefur vakið athygli á skrifum mínum af og til. Takk fyrir það líka :-)

Ólína Þorvarðardóttir, þri. 18. mars 2008

Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir

Afar áhugaverð síða.

Datt í hug að benda þér á þessa síðu þar sem fjallað er á afar málefnalegan hátt um umhverfismál.http://www.larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/475499/#comments

Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir, lau. 15. mars 2008

Lítill,minni, minnstur, það er nú það.

Sæll og heill. Var á leiksýningu í Borgarleikhúsinu. s'a þar sýninguna Hetjur, dásamleg kvöldstund. Þar var líka til sýnis þessi fíni smábíll, Fiat 126, með hálfblæju, smíðaður í Póllandi. Hann var að vísu ekki á sviðinu, hefði sómt sér þar vel, heldur á gólfinu fyrir framan. Sannkallað augnayndi fyrir menn og konur sem eru með þennan áratuga ólæknandi almenna farartækjaáhuga. Hafði lesið það í blaði að þetta væri minnsti blæjubíll landsins. Mér sýnist hann samt vera fetinu lengi en 1926 módelið af Austin 7 bíl, sem ég veit um. Sá er einnig ekki nema 460 kg og það með fullan tank af bensíni. Gaman væri að bera þá saman hlið við hlið. Að auki eru 60 ár á milli þeirra og báðir nýbúar. Gaman að þessu. Bestu kveðjur bg

Bragi Guðmundsson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 29. feb. 2008

Glitfaxaslysið 1951

Sæll Ómar. Minnist þess að þú hafir rætt um þetta slys í sambandi við fund norskrar flugvélar á Skerjafirði fyrir nokkrum árum. Afi minn Snæbjörn Bjarnason var meðal farþega Glitfaxa þennan umrædda dag. Ég var sjálfur tæplega eins árs, þegar þetta gerðist, og veit því lítð sem ekkert um þetta slys. Ég minnist þess heldur ekki, að nokkuð hafi verið ritað eða rætt um þetta hörmulega slys opinberlega. Á mínu æskuheimili var lítið talað um þetta og pabbi minn Valtýr sonur Snæbjarnar átti örugglega ekkert gott með að ræða það við okkur krakkana. Mig hefir lengi langað að rifja upp þessa sögu. Veit svo sem ekki hvernig ætti að snúa sér í því máli. Það væri merkilegt að rifja upp þessa atburði. Það hljóta að vera til talsverðar heimildir um atburði, bæði frásagnir þeirra, sem á einhvern hátt tengdust málinu og opinberar heimildir. Ég er nú bara svona að opna málið á einhvern hátt, og hef samband við þig þar sem þú ert áhugamaður um allt milli himins og jarðar. Þar er flugið og allt, sem því tengist ofarlega á blaði. Kær kveðja, Friðbjörn Ólafur Valtýsson Vestmannaeyjum. s. 891 8011

Friðbjörn Ó. Valtýsson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 29. feb. 2008

Stefán Helgi Valsson

Power Struggle. Grein í National Geographic Magazine

Sæll Ómar, Vinsamlega lestu greinina Power Struggle sem birtist í marshefti NG Magazine. Takk fyrir ógleymanleg kynni í fjallaskála nóttina áður en botnrás Hálslóns var lokað. http://frontpage.simnet.is/valsson/Internet_Articles_by_Stefan_Helgi_Valsson.htm

Stefán Helgi Valsson, mán. 25. feb. 2008

Linda Rós Jóhannsdóttir

góðann daginn

bara kvitta !! það er lámarks kurteysi´ef allir hugsuðu svona eins og þú þá væri Ísland allt annað. hef a næs dei

Linda Rós Jóhannsdóttir, fim. 21. feb. 2008

forvitinn

Hæ Ómar við erum hér að lesa síðuna þína. Gangi þér vel á leið þinni til Svíðþjóðar.

Sigríður Kristinsdóttir og HelgaJóhannsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 12. feb. 2008

Ástarþakkir

Sæll Ómar, Mig langar til að þakka þér fyrir falleg orð í garð elskulegrar vinkonu minnar Þórdísar Tinnu. Minningar um hana geymi ég í hjarta mínu umvafðar kærleik sem ég ber til hennar. Hún var svo sannarlega sigurvegari. Kær kveðja, Karen Viðarsdóttir

Karen Viðarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 29. jan. 2008

Borgarstjóri Íslandshreyfingarinnar

Sæll Ómar, mér þætti vænt um að heyra þitt álit á því að Íslandshreyfingin sé komin með borgarstjóra og hvort að þið hafið komið nærri þeim gjörningi. Hvað finnst ykkur um ykkar mann Ólaf í þessum pólitíska hildarleik?

Gústa (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 23. jan. 2008

Bjarni Harðarson

takk frá okkur jónas

takk fyrir kommentid félagi og frábaeran pistil um jónas á vef jóns magnússonar. kv. -b.

Bjarni Harðarson, sun. 6. jan. 2008

Jóhanna Garðarsdóttir

Gleðilegt ár

Sæll og bless Ég hef mjög gaman af að lesa pistla þína og hugleiðingar. Það skemmir ekki að oft koma hinar skemmtilegustu afhugasemdir á eftir. Ég vona að þú hafir ekki á móti því að ég hef skráð þig á mína síðu í "bloggaralistan minn sem er nú ekki nema 2 enn (fer mjög hægt í þetta) þá get ég farið beint inná bloggið þitt þegar þannig liggur á mér. kærar þakkir fyrir þitt innleg í netheimum kveðja Jóhanna Garðarsdóttir

Jóhanna Garðarsdóttir, lau. 5. jan. 2008

Gleðileg jol

Stöndum saman

Auður Aðalsteinsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 23. des. 2007

Stöndum vörð

Ástarþakkir fyrir þitt framlag

Auður Aðalsteinsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 23. des. 2007

ausa@simnet.is

Það fer um mig hrollur. Látum þetta aldrei gerast Ómar. Aldrei skal Gullfoss hreyfður eður hans vatnasvæði. >Stöndum föst um það. Þú lengi lifi ´>OMar

Auður Aðalsteinsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 23. des. 2007

Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir

Gleðíleg jól

Kærar þakkir fyrir pistla þína um umhverfismál.

Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir, fös. 21. des. 2007

Mats Wibe Lund

Mozart íslenskra söngvara

Hafðu hjartans þökk fyrir áhugaverð og falleg orð.

Mats Wibe Lund, lau. 15. des. 2007

HSV frá Egilsstöðum

Sæll Ómar. Held mikið upp á þig og hvað þú ert mikill baráttumaður fyrir Ísland, landið þarf svo sannarlega á þér að halda...við stöndum með þér! Þú manst kannski ekki eftir mér en ég tók í höndina á þér eftir stjórnmálafundinn sem var haldinn í Menntaskólanum á Egilsstöðum síðastliðið vor, og þakkaði þér fyrir. KV: HSV...

Hafrún S. (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 7. des. 2007

Þóra Margrét Júlíusdóttir

Hugrekki

Blessaður og sælla Ómar. Þú hefur verið á vörum þjóðarinnar svo lengi sem ég man eftir mér. Nafn þitt tengist æði mörgu í mínum huga; jólunum, kveðskap, fréttamennsku, flugvélum, Galtalæk, Heklu, landinu, íslenskunni ... Íslandi! Þú ert í mínum huga samofinn íslensku þjóðarsálinni. Ég hef aldrei þorað að taka afstöðu til Kárahnjúka og virkjananna í kaffiboðum en hef alltaf vonað að virkjunin myndi detta upp fyrir. Ég s.s. lokaði augunum og þorði ekki að láta óánægju mína í ljós. Þegar ég kíkti núna áðan á myndasafnið þitt á Hugmyndarflugssíðunni, þá skammaðist ég mín ofboðslega. Hvað ef ég og þeir sem í svipuðum sporum voru hefðum risið upp á afturfæturnar og látið til okkar heyra. Hefðu framkvæmdirnar haldið áfram? Ég tek ofan af fyrir þér Ómar og vona að ég verði mér og þjóðinni ekki til skammar næst þegar þarf að standa í vegi fyrir því að landi okkar verði spillt. Virðingarfyllst, Þóra Margrét Júlíusdóttir

Þóra Margrét Júlíusdóttir, fim. 22. nóv. 2007

KVEDJA

KONDU NU SAELL OMAR MINN EG HEITI SIGRUN OF BY I AMERIKU EG VANN I SLATURFELAGINU I MORG AR OG TU KOMST A THORRABLOTID OG SKEMTIR OKKUR OLLUM EG HEF ALLTAF ELSKA KVAD TU VARST ALLTAF SVOG FINDINN.KAER KVEDJA SIGRUN MEDLEY

SIGRUN MEDLEY (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 12. nóv. 2007

Kveðja frá Egilsstöðum

Sæll kæri Ómar, ég er sammála því sem þú hefur fram að færa í umhverfismálum. Takk fyrir síðast ;) kannski manstu ekki eftir því en það er í fínu lagi (hitti þig fyrir utan Bónus og N1)

Friðrik Kjartansson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 26. okt. 2007

Viðar Jónsson

Þingvallavatn

Hún gladdi mig grein þín í Fréttablaðinu. Ég hef verið að þenja mig hér á blogginu um þetta vegna þess að mér finnst þetta vera fegursti staðurinn. Það er ómetanlegt að fá fram svona góð rök frá sérfræðingi í Islandi. Þú bregst ekki. Kv.Viðar Jónsson

Viðar Jónsson, þri. 23. okt. 2007

Kveðja að austan

Kæri Ómar Ég styð þig heilshugar í umhverfismálunum

Friðrik Kjartansson (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 23. okt. 2007

Elsku karlinn

Kæri Ómar Ég sendi þér tölvupóst um árið þegar þú varst ennþá fréttamaður hjá RUV og ég gagnrýndi frétt þína um Kárahnjúka á þeim forsendum að þú værir að misnota stöðu þína sem fréttamanns hjá "hlutlausum" fréttamiðli. Þú svaraðir mér (takk fyrir aftur), sem ég kunni afar vel að meta enda mikill aðdáandi þinn sökum þess sem þú hefur gert í gegnum tíðina. Þú svaraði að fréttir þina væru alls ekki hlutlægar (þ.e. bæru keim af þínum eigin skoðunum) og vitnaðir til úrskurðar því til vitnis. Því miður, því miður, þykir mér þú hafa sannað sök þína og dreg ég hér með afsökunarbeiðni mín tilbaka, sem ég lagði fram eftir að hafa fengið svar þitt. Þú, elsku karlinn minn, ert að verða eins og hann Hjörleifur sem að hengir sig við sömu hlutina. Það er hægt að velta þessu með Kárahnjúka, arsemisútreikninga og álver endalaust fyrir sér EN úr því sem komið er, er aðeins hægt að láta framtínina skera úr því hvernig leikar enda. Ég, fyrir mína hluti, er sannfærður um að álver á Reyðarfiði og sá fórnarkostnaður sem virkjunin á Káranhnjúkum er, kemur Austurlandi og þar með allri þjóðinni til góða! ...en það er gaman að fólki sem brennur fyrir einhverju og reynir að breyta því og þó við séum ekki á sama máli hvað þetta varðar þá er það ekki neitt að væla um. Kveðja Þórir Harðarson Gautaborg, Svíþjóð

Þórir Harðarson (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 22. sept. 2007

Við gefumst aldrei upp

Ómar, gott er að vita af þér í fremstu víglínu í stríðinu við virkjanaóvita. Ég styð þig alla leið og er stoltur af þér. Ég er nú ekki mikill ljóðalesari en ég held að þrjú síðustu erindin í kvæðinu "Fylgd" eftir Guðmund Böðvarsson séu það sem allir Íslendingar ættu að lesa. Pabbi hans Friðriks Sófussonar hefði átt að lesa þetta þetta kvæði fyrir hann Frikka litla. Kv, Stefán Þ. Þórsson landfræðingur Fylgd Komdu, litli ljúfur, labbi, pabba stúfur, látum draumsins dúfur dvelja inni um sinn. -- heiður er himinninn. Blærinn faðmar bæinn, býður út í daginn. Komdu, kalli minn. Göngum upp með ánni inn hjá mosaflánni, fram með gljúfragjánni gegnum móans lyng, -- heyrirðu hvað ég syng -- líkt og lambamóðir leiti á fornar slóðir innst í hlíðarhring. Héðan sérðu hafið hvítum ljóma vafið, það á geymt og grafið gull og perluskel, ef þú veiðir vel. En frammi á fjöllum háum fjarri sævi bláum sefur gamalt sel. Glitrar grund og vangur, glóir sund og drangur. Litli ferðalangur láttu vakna nú þína tryggð og trú. -- Lind í lautu streymir, lyng á heiði dreymir, -- þetta land átt þú. Hér bjó afi og amma eins og pabbi og mamma. Eina ævi og skamma eignast hver um sig. -- stundum þröngan stig. En þú átt að muna alla tilveruna, að þetta land á þig. Ef að illar vættir inn um myrkragættir bjóða svikasættir svo sem löngum ber við í heimi hér, þá er ei þörf að velja: þú mátt aldrei selja það úr hendi þér. Göngum langar leiðir, landið faðminn breiðir. Allar götur greiðir gamla landið mitt, sýnir hjarta sitt. Mundu, mömmu ljúfur, mundu, pabba stúfur, að þetta er landið þitt. Guðmundur Böðvarsson

Stefán Þ. Þórsson (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 23. ágú. 2007

Helgi Baldvinsson

Krýsuvíkurleið

Sæll Ómar. Af því að ég veit að þú hefur áhuga á vegum og náttúru landsins, langar mig að leggja fyrir þig þraut....sem ég lenti ósjálfviljugur í að leysa um helgina. Ég ætlaði að prófa að veiða í Kleifarvatni. Lagði leið mína í gegnum Hafnarfjörð frá Reykjavík og sá skilti: "Krýsuvík" og á sama skilti "Bláfjöll". Ör til hægri. Aðreinin tekin, farið í næstum hring og síðan undir brú. Að fyrsta....og alls ekki síðsta hringtorginu í þessari ferð. Þar er merkt Krýsuvík sem fyrsta útkeyrsla. En? Það var bílastæði á einhverju hálfbyggðu verslunarhúsi? Gat þetta verið? Prófaði að aka annan hring á hringtorginu. Næsta útafkeyrsla var lokuð með búkkum. Þriðja kom ekki til greina. Fór því inn á bílastæðið, fram hjá húsinu fyrrnefnda og fann annað hringtorg hinum megin við húsið. Hvar er nú Krýsuvíkurleið. Þarna endar mín vísbending. Ef þú átt leið þarna um, prófaðu að finna Krýsuvíkurleið. Ég var samt undarandi hve margir voru á svæðinu í kringum Kleifarvatn, eins og þetta er illa merkt....eða fór eitthvað skilti framhjá mér? Kveðjur, Helgi Baldvinsson

Helgi Baldvinsson, mið. 8. ágú. 2007

Stattu þig strákur!

Kæri Ómar mig langar að senda þér báráttu kveðju gangi þér allt í haginn.Kveðja ein að norðan:)

María Gissurardóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 1. ágú. 2007

Umhverfisvænir bílar

Sæll Ómar. Ég er búsett í Noregi, og mér datt í hug að ég gæti verið þér að liði í baráttu þinni fyrir rafknúnum og öðrum umhverfisvænum bílum á Íslandi. Þetta er mér mikið áhugamál, og get ég útskýrt hann nánar fyrir þér ef áhugi er fyrir hendi. M.a. lítur út fyrir að ég fái að vera með í að búa til bíl knúin sólarorku nú í vetur. Hafðu endilega samband ef þú telur ég geti verið þér einhver hjálp í baráttunni á Íslandi! Sigríður Sigursveinsdóttir sigridur.sigursveinsdottir@hiof.no

Sigríður Sigursveinsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 24. júlí 2007

Ævar Rafn Kjartansson

Þarf að senda þetta hér

Hef sent þér beiðni á hugarflug en ekki virkað þannig að beiðnin kemur hér aftur. Mig vantar yfirlitsmynd af virkjuninni við Minni-Núp til að teikna ofan í hver verður raunveruleg vatnsstaða í ánni eftir virkjun. Ekki sú sem Landsvirkjun auglýsir.

Ævar Rafn Kjartansson, lau. 21. júlí 2007

Stjörnumglaður

Ómar úr Íslenskum fjöllum, köllun á betra líf græðgin afvegaleiddi hringbera landsins og víf móðir náttúra biður um fylgd með öllum konum og köllum, álfum og tröllum Andinn er yfir okkur nú með kærleiks-hreyfingu og snú-snú leiðin er þröng og ströng en biðin alls ekki löng Sameinum krafta og trú verum sem eitt ég og þú djásn guðs er í okkar höndum leysum sköpunina úr höftum og böndum Náttúran gaf okkur von dóttur og son listin að lifa er að lifa kveðjum loforð í innhaldslausum pökkum með samhug, ást og lotningu þökkum Saga framtíðar er okkar sama hversu margir flokkar berjast um hringinn góða í landi lista og ljóða Dætrumfrjóvi Íslands

Eydís Eyjólfsdóttir, Sigrún Pálsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 8. maí 2007

Paunk og pólitík!!

Sæll Ómar! Íslensku pönki yrði sannur heiður af því að fá þig á Stúdentakjallarann næsta þriðjudagskvöld! Þann 8. maí munu nokkrar af pönkuðustu pönksveitum landsins spila á Stúdentakjallaranum. Þar sem pönkið spyr hvorki um aldur né fyrri störf, vilja sveitirnar bjóða öllum þeim frambjóðendum sem hafa áhuga - en þó sérstaklega þér - að koma og nýta síðasta tækifærið til að sannfæra unga fólkið um hvar x-inu sé best borgið í komandi kosningum. Hljómsveitirnar munu spila og á milli laga eru frambjóðendur boðaðir upp á svið til að svara spurningum og koma sínum skoðunum á framfæri, með örlítið óformlegri hætti heldur en tíðkast í hringborðsumræðum fjölmiðlanna. Svo er frambjóðendum að sjálfsögðu frjálst að taka lagið með einhverju bandanna, enda er undirbúningur og fyrirfram saminn texti algjört aukaatriði í heimi pönksins! Ef þú ert staðráðinn í að mæta máttu gjarna staðfesta komu þína á netfangið heipaunk@gmail.com Húsið opnar kl. 20 og leikar hefjast eigi síðar en 20.30. Fundinum verður stjórnað með harðri hendi og fær hver frambjóðandi úthlutað ákveðnum tíma, sem ræðst af því hversu margir vilja fá orðið. Breiddu endilega fagnaðarerindið út á meðal flokkssystra þinna og bræðra! Að sjálfsögðu verða fjölmiðlar sérstakir heiðursgestir. Spyrðu ekki hvað þú getur gert fyrir pönkið? heldur hvað pönkið getur gert fyrir þig!

Hostage (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 4. maí 2007

Til ykkar sem ritið um landbúnað !

Eitt er það sem íslenzkur landbúnaður hefir fram að þessu haft umfram þann sem rekinn er í mögum öðrum löndm og það er lítil notkun á spilliefnum. Því þarf að viðhalda og auka. Á mælihvarða okkar íslendinga er gífulega stór markaður fyrir ómengaða matvöru. Við þurfum að auka hlutdeild okkar á þeim mörkuðum og setja okkur gæðastaðla sem taka fram gæðastöðlum allra annara þjóða. Es. Það fæst mjög gott verð fyrir vistvæna vöru úti í hinum stóra heimi.

Haraldur Ægir Hraundal Ægisson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 2. maí 2007

Usss Hvar færð þú alla þessa 0rku ! gefðu mér smá :D

Það er með ólíkindum hvað þú ert mikill orkubolti "kall" ég hafði það loks af að skrá mig í hreyfinguna í gær. Vona að þú finnir not fyrir mig. Með kveðju gymir@hive.is

Haraldur Ægir Hraundal Ægisson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 2. maí 2007

Ævar Rafn Kjartansson

Baráttukveðjur

Nú er það Þjórsá sem þarf að bjarga. Vill benda þér á grein hjá mér: Lækjarsprænan Þjórsá og vald Landsvirkjunar http://aevark.blog.is/blog/aevark/ Bestu óskir um gott gengi. Kv Ævar Rafn Kjartansson

Ævar Rafn Kjartansson, lau. 21. apr. 2007

Sandra Dögg

Áfram Ómar!

Þú hefur ávalt verið minn uppáhalds karakter í íslensku samfélagi og bara svona til gamans gert þá nefni ég það að mín fyrsta "geisla diska eign" og þannig séð mín fyrstu kynni af tónlist var einmitt diskurinn "Þegar Ómar hafði hár" og var hann spilaður af hörku skal ég þér segja! Nú ert þú kominn í pólitíkusinn og vona ég að þú fallir ekki í hina týpísku pólitíkusa mynd og verðir stífur og gerfilegur, ekki að ég búist beint við því af þér en ég vona allavegana að Ómar Ragnarsson sé og verði ávalt Ómar Ragnarsson :)

Sandra Dögg, lau. 21. apr. 2007

Smátaveiðar verði gefnar frjálsar

Þett er laust fyryr margar byggdir Árbu Bjorn Gudjonsson

Árni Bjorn Gudjonsson (Óskráður), fim. 12. apr. 2007

Varðandi Kjarnorku

Mig langar mjög að vita, Vill Íslandshreyfingin Kjarnorkuver. Kannski heyrði ég eitthvað vitlaust eða varstu að tala um það í kastljósinu?

Hendrik Tómasson (Óskráður), þri. 10. apr. 2007

Ásgeir R. Helgason

Kveðja frá Stokkhólmi

Takk fyrir síðast Ómar. Þitt framlag til Íslendingafélagsins í Stokkhólmi verður lengi í minnum haft. Lifi fjalldrapinn!

Ásgeir R. Helgason, mið. 4. apr. 2007

Öllu gamni fylgir nokkur alvara

Ég er stolt af ykkur að standa í þessum barningi fyrir okkur hin líka, þó við höfum ekki þorið sem þarf.

www.heilsufrettir.is/solosk (Óskráður), mán. 2. apr. 2007

"Ómar Ragnarsson og köllun hans til Íslands"

kíktu á: http://www.au.blog.is/blog/au/ Velkomið að styðja ykkur í kosningabaráttunni. Rek Auglýsingastofa Íslands og er hægt að semja um mjög sanngjörn verð. Er þó nokkuð upptekin til 17.apríl, en eftir það er ég til. Gangi þér vel í baráttunni þinni. Með bestu kveðju, Sólveig Dagmar Þórisdóttir

Sólveig Dagmar Þórisdóttir (Óskráður), sun. 1. apr. 2007

Til hamingju með framboðið - áfram Ómar og co

ÉG er ánægður með framboð ykkar. Ég vil jafnframt benda á blog síðu mína: siggisig.blog.is kv Sigurður Sigurðsson

Sigurður Sigurðsson (Óskráður), lau. 31. mars 2007

Sacrificing nature for neo liberalism

By preaching neo liberalism in Icelandic agriculture you will doom this movement. It is not enough to get a stronghold in Reykjavik. If you have no foothold in the north and east part of Iceland this will burst like a soap bubble. We are watching this very closely in Holland and hoping for the best. We totally agree with what you are trying to do for the Icelandic nature, but please do not mix preservation and capitalism.

Jager (Óskráður), fim. 29. mars 2007

Sigfús Þ. Sigmundsson

Kontaktuppl

Sæll Ómar Ég fékk einhverja hluta vegna fyrirspurn frá konu í London sem hefur áhuga á að komast í samband við þig. Skilst að það sé vegna myndarinnar sem þú ert að gera um Kárahnjúka. Geturðu sent á mig tölvupóst á sigfus.sigmundsson@gmail.com og þá get ég framsent þér póstinn góða. kk., Sigfús

Sigfús Þ. Sigmundsson, þri. 27. mars 2007

Landbúnaðurinn og náttúruverndin

Hræddur um að það verði banamein þessa nýja framboðs úti á landsbyggðinni ef þið ætlið að predíka nýlíberalistíska landbúnaðarstefnu. Ómar, ekki fórna atkvæðum til verndar náttúruperlum fyrir ænnur minni mál.

Þrúða (Óskráður), sun. 25. mars 2007

Björg F

Íslenskur landbúnaður

Það er alveg víst að náttúruvernd og íslenskur landbúnaður helst þétt í hendur. Það verður að vernda landbúnaðin og íslensku kindina. Hún er þyngdar sinnar virði í gulli. Að auka samkeppnina þar er ég ekki viss um að yrði neinum til góðs. Vonandi að Íslandshreyfingin fari ekki að styðja slíkt. Við eigum að vera sjálfbær. Afla okkur mat sjálf. Ef það kæmi til dæmis kreppa erlendis fyndum við minna fyrir því vegna þess að við framleiðum okkar eigin mat. Erum ekki háð innflutningi á nauðsynlegum matvörum. Eins má leiða rökum að því að ef við færum að flytja inn erlendan landbúnað og afnema tolla myndi fljótt íslenskur landbúnaður verða undir. Íslenskur landbúnaður getur ekki keppt í verði og hann má við litlum samdrætti nú þegar.

Björg F, sun. 25. mars 2007

Hello Ómar

This would seem like a David & Goliath battle to me, I wish you every success. As far as the proposed extension to the Alcoa factory is concerned, where does your party stand ? I am also interested to hear your views on the issue of foreigners living in Iceland. I totally agree with you that before Iceland becomes a nation that is ruled by big industry, someone has to step in and ensure that the natural beauty that surrounds us is not permanently damaged.

Alan Winrow (Óskráður), lau. 24. mars 2007

Sæll Ómar

Til hamingju með Íslandshreyfinguna. Ég hef beðið eftir þessu framboði þínu, ég hafði jafnvel hugsað mér að flytja lögheimili mitt til Reykjavíkur ef þyrfti til að geta kosið þig og Íslandshreyfinguna í næstu kosningum. Þegar ég heyrði að framboðið yrði á landsvísu, ákvað ég að ganga í flokkinn, vinna vel og leggja mitt af mörkum fyrir hann. En nú kom heldur betur babb í bátinn. Ég tel að ekki sé hægt að vernda landið nema að vernda um leið Íslenskann landbúnað. Þess vegna varð ég fyrir gífurlegum vonbryggðum að sjá þessa setningu: "Þá benti Margrét á að flokkurinn vildi auka samkeppni í landbúnaði". Ef þetta verður á stenuskrá flokksins get ég hvorki stutt hann með því að kjósa hann, né heldur get ég gengið til liðs við ykkur og það þykir mér miður. Gangi þér samt allt í haginn við að vernda Íslenska náttúru. Kveðja Edda Hrafnsdóttir

Edda Hrafnsdóttir (Óskráður), fim. 22. mars 2007

Björg F

Sammála með Guðrúnu...

Hún er elskuð af öllum sem hafa kynnst hennar störfum.. Hún er þingmaður sem stendur við orð sín, mikil hugsjónarmanneskja og afskaplega vinnusöm og dugleg. Hef reyndar aldrei kosið hana þar sem hún var ekki alveg í rétta flokknum fyrir minn smekk.. En myndi vel getað hugsað mér það ef hún færi fram með ykkur. Áfram með góða hluti.. og Ómar nú er að duga eða... munið bara að vera með jákvæða kosningabaráttu og draga fram hina endalausu möguleika sem þessi þjóð hefur.. jákvæðni, bjartsýni og kjark. Kveðja Björg F

Björg F, mið. 21. mars 2007

Guðrún Agnarsdóttir

Fáið Guðrúnu Agnarsdóttur í fyrsta sæti fyrir norðan. Hún fékk ca. 25% ftlgi á landsvísu á sínum tíma en var mun hærri á norðausturlandi. Ég veit að Guðrún á bóndabýli í Svarvaðardal. Sjálfur er ég skráð í annan flokk (meira að segja á lista) svo ég get ekki skrifað undir nafni EN ef þið fáið gott fólk á lista mun ég kjósa ykkur þrátt fyrir að ég sé sjálf í framboði fyrir aðra.

Þrúða (Óskráður), mán. 19. mars 2007

Stuðningsmaður þinn í baráttunni um náttúruvernd á Íslandi

Sæll Ómar, ég hef mikinn áhuga á því að skoða stefnu þína og tilvonandi flokks. Það sem ég hef heyrt frá þér og lesið snertir mig mjög djúpt. Ég er í námi við Kennaraháskólann. Mig langar að ganga til liðs við ykkur. Hvernig kemst ég í samband við ykkur?

Elín Sigríður (Óskráður), þri. 13. mars 2007

frá Húsavík enn ekki Álverssinni

Sæll Ómar Má ég nota myndirnar þínar til að setja á síðuna mína ? htt://www.123.is/turid/ inn á þessari síðu er framtíðarsýn indjána(ræða indjánahöfðingja)ef þessi höfðingi hefur ekki seð fram í tíman þá gerir það eingin, allvega sjá álverssinnar það ekki. Við eigum að nota okkar hreyna og fallega land sem landkynningu,að vísu verður landið ekki þannig ef allt fer fram sem horfir álver er ekki góð landkinning. Gángi þér vel Þuríður

Þuríður (Óskráður), mán. 12. mars 2007

BLOG

Sæll Ómar. Kraftur í þér sem endranær. Ábending! Þessi blog-heimur er rotinn og leiðinlegur. Settu upp síðu þar sem allt þetta kjaftæði sem birtist í athugasemdum "bloggverja" getur ekki birst. Þetta blog er - kaffibrúsakarlaröfl - og sæmir slíkum. Gangi þér vel. Stefán

Stefán (Óskráður), sun. 11. mars 2007

svar

ómar þú vilt skipta á alcan og tölvurisa einsog bill geits en veistu ekki að allur tölvubúnaður er framleidur í kína og koreu og eitt sinn áttum við oskabarn sem hét os og var í hugbúnaðargeiranum og ekki fór það vel þú ætlar kanski að fara að fara inná elliheimilin og lofa þar öllu fögru einsog aðrir frambjóðendur og standasvog ekki við neitt eftir kosningar, ég kunni nú betur við þig sem fréttamann og skemtikraft, held þú hefðir átt að halda því áfram og láta ógert að verða skotspónn stjórnmálanna. ég er austfirðingur og hef oft farið um óbygðir austurlands vetur og sumar og það var engin fórn í káranhnjúkum þar var yfirleitt enginn á ferli sem þið kallið nú þjóðgarð.SS

SS (Óskráður), lau. 10. mars 2007

Framboð

Þetta framboð ykkar er tímabært og vonandi hafið þið fleira fram að færa en umhverfismál, ég tel að ef þið setjið fram skýra stefnu í málum eins og vaxtaokurmálum þar sem að tekið er af öll tvímæli um að þið ætlið að afnema og banna verðtryggingu á lánum og jafnframt lögbinda vexti í 5% af húsnæðislánum, sem er nauðsinlegt annars hækka þessir bankar bara lánin einhliða , þá er víst að þið fáið marga húseigendur til að kjósa ykkur, enda hafa bankastofnanir alla möguleika til að tryggja sig með evru og dollara kaupum og hafa jafnframt sagt opinberlega að þessi gróði þeirra sé allur af erlendu bergi borin, þá getur þá varla munað um það að skila til baka þeim fjármunum sem ég tel að þeir hafi hrifsað til sín með klóku bragði sínu um lækkaða vexti og aukin útlán þar sem að þeir vissu að það mundi auka verðbólgunna og þeir einir mundu græða á þessu útspili sínu, ásamt fasteignasölunum sem eru hvort eð er undir hælnum á þeim enda bankarnir stærstu fasteignaeigendur landsins. Það er nauðsinlegt að setja lög og reglur um að lánastofnanir geti ekki haldið uppi einokun og fákeppni á fasteignamarkaðinum og nauðsinlegt er að setja lög um að lánastofnanir verði að selja eignir sem þeir eignast aftur, innan 3. mánaða annars verði að bjóða upp eignina aftur. Þá eru mál eins og fiskveiðistjórnunnin þar sem nánast allir landsmenn eru sammála um að það nái ekki nokkurri átt að örfáir einstaklingar fái að braska með þessa auðlind landsmanna og leggja niður heilu byggðarlöginn, gamla kerfið virkaði ágætlega og ég tel að sjómenn séu full færir um að fara með þessi mál eins og landeigendur sem vilja ekki leggja land sitt undir stóriðju. Þá eru málefni dómsvaldsins í molum og flestir landsmenn horfa með hryllingi á dómsúrskurði þar sem að glæpamenn ganga út úr dómsölum landsins brosandi út að eyrum af því að þeim er gefinn góður frestur til að klára að ganga í skrokk á meðborgurum sínum og hafa jafnframt vissu fyrir stuttu stoppi eða jafnvel engu stoppi í fangelsi, fyrir verknað sinn, enda ekki sama hver á í hlut og tölfræðin segir allt sem segja þarf um dómskerfið, sem hyglar óspart stóraðilum og ríki og veður yfir almenning á skítugum skónum það þarf ekki annað en að skoða útvistamálafjöldann til að átta sig á því hvað almenningur telur sig geta gert í dómsmálum, því miður þá eru lögin ekki fyrir almenning heldur eru þau gerð fyrir ríkisvaldið og stórfyrirtæki. Þá er líka ljóst að aðgengi almennings að dómskerfinnu er verulega skert og ekki í samræmi við jafnræðisreglu stjórnarskráarinar, gott dæmi er, maðurinn sem stefndi Olíufélögunum og þarf að leggja út hundruð þúsunda króna til að sanna kröfu sína upp á nokkra tugi þúsunda króna, þetta er nú eitthvað það fáránlegasta sem viðgengst í dómskerfinnu, auðvita eiga menn sem eru sekir að hafa skaða af framferði sínu, en ekki græða á að stela og ljúga og enda með að þurfa, aðeins að borga brot af þýfi sínu, taksit fórnalambinu að sanna það fyrir dómi með dómkvöddum matsmönnum sem geta verðlagt sig eins og þeim sýnist , ég tel að ef þið boðuðu raunverulegt eftirlit með dómurum landsins, þá fyrst mundi þau mál lagast, það er ótrúlegt að örfáir menn sem sitja sem dómarar hafi alræðisvald til þess að kveða upp úr með hvað sé rétt og hvað sé rangt án nokkurs eftirlits og þurfi jafnvel ekki að fara að lögum í úrskurði sínum, sem mörg dæmi eru um í dag og jafnframt hefur það viðgengist í áranna rás, þrátt fyrir að það sé klárt að þeim beri að dæma aðeins eftir lögunnum, samanber lög um dómara. Þá tel ég að umhverfissinnar sem og aðrir sem þurfa að geta staðið vörð um liðræði landsins eigi ekki að þurfa að leggja út aleigu sína til þess að reina að ná fram rétti sínum, ef ég væri þið þá mundi ég boða nýungar í dómaathöfnum og setja lög um það að málskostnaður manna greiðist alfarið úr ríkissjóði til að byrja með og síðan greiddist málskostnaður samkvæmt dómsúrskurði sem vonandi væri þá áráðanlegur og réttur, þar sem að dómarar hafa ekki lengur möguleika á að fara frjálslega með í niðurstöðum sínum. Þá tel ég það raunhæft að setja lög um nefndir þar sem að skylt væri að nefndarmenn væru jafn fjöldi hagsmunaaðila, það er að ef fjalla á um landvernd þá verði skylt að skipa helming nefndarmanna úr röðum umhverfissinna. Þá eru mál öryrkja og ellilífeyrisþega auðleysanleg þar sem að Tryggingarstofnun ríkisins er að mínu mati tímaskekkja og svo er líka með atvinnumiðlanir atvinnulausra þessu má öllu breyta með því einu að setja persónuafsláttinn í kr. 200,000,- per. mann og ef menn ná ekki að nýta hann í hverjum mánuði þá greiðist hann út, sem því nemur sem upp á vantar, þetta mundi stór spara í rekstri ríkisins og við erum að tala um að nota sömu fjármunina sem eru notaðir í dag og sendir eru nú í gegnum þessi bákn sem aðeins virka alltof seint fyrir það fólk sem þarf á þessu að halda og þá má ekki gleyma að verðtryggja þessa upphæð persónuafsláttarins þannig að ríkið haldi ekki áfram að snuða þetta fólk. Lífeyrasjóðabaknið ætti að taka inn í ríkissjóð og trygga þar áðurnefndan persónuafslátt enda ef þetta er gert með lögum tildæmis í stjórnarskrá þá er allt sukk með þessa fjármuni bundið í lög, en ekki einhverjar hugdettur stjórnarmanna lífeyrisjóðanna. Þá eru eftirlitsstofnanir landsins eins og Persónuvernd Samkeppnisstofnun Fjármálaeftirlitið harla ómerkilegar stofnanir og sektir þeirra aðeins málmyndunar gjörningar þar sem að búið er að afbaka verkefni þessara stofnanna þannig að þær eru aðeins hinum brotlegu til halds og trausts samanber samráð banka og sparisjóða með sameiginlega upplýsingaveitu um kúnna hvers annars (Lántraust/Reiknistofnun bankanna og fl.), Olíufélögin og fleiri aðila sem hafa komist upp með að greiða smá brot af ætluðum hagnaði þeirra af brotum sínum og geta fengið stórkostlega afslætti með því einu að taka málið til dómstóla og samhliða hækkað vöruverð sitt þar til að þeir koma út með hagnað eftir allt saman. Bestu kveður, Sigurður Pétur Hauksson

Sigurður P Hauksson (Óskráður), mán. 5. mars 2007

Ég ætla að verða Ómar Ragnarsson þegar ég verð stór!

Ég minnist þess sem barn og unglingur, aðspurður um það hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór, að hafa svarað að ég vildi verða eins og Ómar Ragnarsson. Og aldrei hef ég verið stoltari af þeim æskudraumi en síðustu misseri. Þú hefur tekið upp hanskann fyrir okkur og Ísland og endurnýjað eldmóð minn og fleiri í þeirri baráttu. Eftirá að hyggja þá sé ég hve barnalegur draumur minn var. Það getur ekki hver sem er orðið Ómar Ragnarsson ;-) Endalaus virðing fyrir þér Ómar...endalaus! Sigurður Ólafur Sigurðsson Kópavogsbúi, Íslendingur og náttúrubarn

Sigurður Ólafur Sigurðsson (Óskráður), sun. 4. mars 2007

Guðlaug Helga Ingadóttir

Tókst það að lokum

Einhver misskilningur í gangi, gat skrifað athugasemd, eftir fleiri tilraunir!

Guðlaug Helga Ingadóttir, sun. 4. mars 2007

Guðlaug Helga Ingadóttir

Ekki með leifi til að skrifa athugasemd hjá þér

Ætlaði að segja að ég biði spennt eftir stefnuskrá flokksins, en hef ekki leifi til að skrifa athugasemd. Hef ég gert einhvað af mér?

Guðlaug Helga Ingadóttir, sun. 4. mars 2007

Finnbogi Rúnar Andersen

Áfram Náttúruvernd.

Sæll Ómar, mig langar bara til að setja hér inn þakklæti mitt fyrir allt það starf sem þú hefur unnið og um leið lýsa stuðningi mínum við málstað náttúruverndar. einhver tíman á þessi þjóð efir að skilja um hvað málið sníst, við skulum vona að það verði ekki of seint.

Finnbogi Rúnar Andersen, fös. 2. mars 2007

Kolbrún Baldursdóttir

Flott síða og þú ert mikill karakter.

Sæll Ómar, vil bara segja þér að mér finnst þú frábær og þótt himinn og haf sé á milli okkar pólitískt séð, alla vega í sumum málum reikna ég með, þá þarf okkar þjóðfélag á manni eins og þér að halda til að minna okkur á eitt og annað.

Kolbrún Baldursdóttir, sun. 25. feb. 2007

Bryndís Guðmundsdóttir  (Binna)

Náttúra íslands

Sæll Ómar. Ég hef mikið verið að velta fyrir mér umhverfi mínu, að heita má allt síðan ég man eftir mér. Er ég fædd og uppalin á suðurnesjum, en bý núna á sveitabæ norður í eyjafirði. Það sem að ég hef séð undanfarið vera að gerast í umhverfi okkar þykir mér miður. Þá má nefna allar stækkanir og öll þessi nýju álver sem að eiga að rísa hérna á landi. Ætli stjórnendur lands og þjóðar viti virkilega ekki að vatnið okkar sé ekki endalaust, samkvæmt spám um hversu mörg ár það tekur jökla landsins að þiðna? Með hverju ætla þeir þá að virkja? Kanski er ég bara svona einföld og skil þetta ekki alveg. En ég vill allavega ekki skilja við landið mitt og setja það mengað í hendur á börnum mínum. Og svo þetta með að líta á grann þjóðir okkar og læra af mistökum þeirra, tja hvað skal segja. Lærum við aldrei neitt nema að þurfa að reyna það sjálf! Maður spyr sig. Hvað ætli það séu mörg ár í að það verðir búnar til kjarnorkuflaugar hér á landi. Náttúruperlur landsins hverfa hver á fætur annari, það er staðreynd, en ég vona að ég geti ferðast um landið mitt áfram og séð fegurð þess án þess að þurfa að horfa á rafmagnslínur hist og her á ferðum mínum. Við getum þakkað fyrir að eiga til einstaklinga eins og þig sem að knýr okkur hinn áfram til að halda fast í það sem að við eigum, og varðveita það eins og það er. Það þarf ekki að snerta á öllu, og þú kaupir ekki ómengað land þegar það hefur orðið fyrir hverskonar mengun. Blessi þig vinur. Bryndís Guðmundsdóttir (lesblinda hrjáir mig)

Bryndís Guðmundsdóttir (Binna), fös. 16. feb. 2007

Jón Gestur Guðmundsson

Flugvéla eldsneyti.

Ég hef verið að velta því fyrir mér, hvernig eldsneyti notar þú á flugvélina þína?

Jón Gestur Guðmundsson, fim. 15. feb. 2007

Hvet til framboðs!

Ég vil eindregið hvetja miðju- og hægri sinnaða umhverfisverndarsinna til framboðs. Það er ekki hægt að bjóða Vinstri Græna, og Samfylkinguna sem valkost fyrir hægri sinnaða umhverfisverndarsinna. - Ónefndur Sjálfstæðismaður sem langar frekar að kjósa hægri græna.

ónefndur (Óskráður), mið. 14. feb. 2007

Tveir jarðsjkjálftar verða á Íslandi næstu 50 ár

Kæri hr. Ómar Ragnarsson, Kæri hr. Ómar Ragnarsson, Landið mun klofna í tvo parta næstu 5 áratugi vegna stórra jarðskjálfta - Suðurlands, og Vesturlandsskjálfta. Varðandi þetta með Reykjanesskagann þá tel ég að hann klofni í Suðurlandsskjálftanum sem verður á tímabilinu frá 2007 - 2026. Þá tel ég að Vesturlandsskjálfti eigi eftir að kjúfa Vestfirðina frá meginlandinu sjálfu og skapa þannig í raun tvö Íslönd - Ísland I, og Ísland II. Hafi ég rétt fyrir mér þá erum við að tala um annan landsskjálfta sem gerist einhvers staðar á tímabilinu frá 2027-2046. Ég tel að miklar líkur séu á tveim mjög stórum skjálftum og að skjálftarnir ásamt nokkrum eldgosum skipti verulega miklu máli fyrir umhverfið og þjóðfélagið hér á landi. Þá tel ég að mjög alvarleg þörf sé á því, að þingmönnum og verktökum sem ekki geta umgengist fósturjörð okkar án þess að eyðileggja hana, verði meinaður aðgangur að öllum náttúruperlum landsins eða gert að greiða mjög hátt verð fyrir að heimsækja þær sem hinn almenni borgari þarf ekki að greiða. Ef bændur vilja vernda Reykjanesskagann, látið Reykjanesskagann kosta peninga fyrir þá sem vilja heimsækja hann sem hafa meira en 1 milljón á mánuði í laun. Það er hár skattur og mikil peningagreiðsla sem álrisarnir og Bora Bora fólkið óttast mest. Og við sem eigum Reykjanesið getum lagt þennan Reykjanessskatt á þá. Við erum að tala um skatt sem gæti skilað sér í milljarða króna hagnaði fyrir bændur á Reykjanesskaga og gert bændum og íbúum á Reykjanesskaga kleift að flytja sig um set verði stór landsskjálfti eða klofni Reykjanesið eða sé stórhætta á að mikil flóðalda skelli yfir stórann hluta Reykjanessins. Ég tel eins og þú og margir aðrir, að tími virkjunarinnar sé liðin tíð. Það er engu að síður hægt að taka stórar stíflur eins og Kárahnjúkastíflu, áður en þeim er lagt, og breyta þeim í stór splitt, og búa til stór stykki sem geta haldið þeim þannig að þær stíflist ekki, og þá getum við lært af þeim sem bjuggu til stífluna í Niagara Falls fossunum. Þá tel ég að hægt verði í framtíðinni fyrir fólk að búa í þyngdaraflsknúnum byggðum í loftinu og lyfta stórhýsunum af yfirborðinu í andrúmsloftið með aðstoð þyngdaraflsknúinnar og segulaflsknúinnar tækni, og þannig búa til nýjar byggðir sem yrðu staðsettar það hátt uppi að ekki sæist til þeirra á yfirborðinu sjálfu. kær kveðja, Ásgeir Valur, matrixs@mi.is

Ásgeir Valur Sigurðsson (Óskráður), mið. 14. feb. 2007

Geta hættulegar taugakerfisörverur þrifist á öræfum Íslands?

Kæri hr. Ómar Ragnarsson, Ég heiti Ásgeir Valur Sigurðsson og er mikill andstæðingur virkjana. Ég tel að hættulegar taugakerfisörverur eða örverur sem valdi sýkingu í taugakerfi fólks geti þrifist á stöðum þar sem mikill jarðhiti er og þar sem aðstæður fyrir slíkar örverur til að fjölga sér eru kjörnar. Þá tel ég að vísindamenn beri að rannsaka hvort að til séu í raun örverur sem hafi skaðleg áhrif á taugakerfi fólks og sem lifi og hrærist á stöðum eins og hjá Töfrafossi en eins og flestir vita þá fór Töfrafoss í Hálslón en ég vona að hægt verið að endurreisa fossinn og að Kárahnjúkastífla verði rifin svo að allir fossar og ár renni eðlilega um svæðin sem þau gerðu fyrir virkjun og náttúruperlur verði endurnýjaðar. Ég tel að taugakerfisörverur séu meðal minnst rannsökuðu örvera í heiminum. Þær geta haft mismunandi áhrif á taugakerfið en þurfa flestar nýjann jarðveg til að fjölga sér í. Margir sem hlusta á umræðu manna eins og Friðriks Sophussonar um dularfullan kynstofn vera sem þeir kalla ´fólkið´, og sem þeir segjast þjóna, eru furðu lostnir yfir því af hverju þessir menn trúa því ekki að fólkshugtak þeirra eigi við um þá sem hafi komið þeim til valda. Þessir patólógísku lygarar, þ.e. menn eins og Friðrik Sophusson hafa orðið svona eflaust vegna snertingar við veirur eða bakteríur sem hafa svo smám saman eyðilagt taugakerfi þeirra. Þá er það einnig staðreynd að eldgos hafa áhrif á andlegt og líkamlegt ástand fólks. Efnasambönd úr eldgosum sem eru eitruð gætu hafa borist í Elliðaárnar og víðar eftir gosið í Vestmannaeyjum, og efnasambönd úr Vatnajökulsgosi gætu hafa haft í för með sér þá vanlíðan og þunglyndi sem Sunnlendingar upplifðu skömmu eftir gosið og sem leiddi til þess að Kárahnjúkar voru eyðilagðir og náttúruperlusvæðið umhverfis þá fór í hálslón. Það ætti að vera minnsta vandamál í heimi að rífa niður Kárahnjúkastíflu, koma fyrir ryksugufiskum eða ryksugutækjum á botn Hálslóns og tryggja einhvern veginn að botninn mengist ekki út af aurnum. En ég tel að það eigi líka að banna þingmönnum, ráðherrum og öðrum einstaklingum sem starfa í ábyrgðarstörfum að koma nálægt náttúruperlum þjóðarinnar eða veita erlendum stórfyrirtækjum upplýsingar um náttúruperlurnar nema þau séu í ferðaþjónustu. Til er a.m.k. 1 örvera sem vitað er um sem hefur mjög skaðleg áhrif á mannslíkamann og sem heldur sig nálægt virkjunum og orkuverum. Hún gengur undir nafninu Morgellon´s disease, og eyðileggur húð hýsilsins og notar svo taugakerfi hýsilsins til að framleiða stresshormóna og halda hýslinum stöðugt vakandi. Morgellon - ormurinn illvígi dreifir sig milli landa og milli húsa í Bandaríkjunum því að læknar vilja ekki viðurkenna tilvist hans. Spurning er hvenær þessi skæði ormur á eftir að koma til Íslands, en hann líkist vírasamsetningu þegar myndir af honum hafa verið stækkaðar þúsundfalt. Svona örverur , bakteríur og vírusar sem halda sig nærri háhitasvæðum geta fjölgað sér um leið og þær komast í beina snertingu við líkami fólks, og borist svo á milli svæða. Ekki nema furða að margir verði hálf bilaðir eftir að hafa umgengst svæði þar sem er mikill hiti í jörðu og þar sem að örverurnar kynnu að halda sig. Þú mátt alveg birta póst minn ef þú villt, en ég tel að þessar örverur séu meðal greindustu örveranna og geti valdið alls kyns afbrigðilegum kenndum hjá þeim sem fær þær í sig. Kannski ert þú og þeir sem hafa aðgang að flugvél og rútum heppnari en aðrir og þeir sem skipta oft um föt heppnari en aðrir sem umgangast þessi svæði og verða fyrir barðinu á örverunum því að svo virðist sem að hreint loft og hreint drykkjarvatn geri sitt gagn í að koma í veg fyrir síkingu. Hugmynd mín um að taugakerfisörverur geti þrifist á öræfum Íslands á vafalaust eftir að valda skelfingu hjá starfsmönnum álrisanna sem eru að eyðileggja öræfin, og tel ég að svona hugmyndir séu mikilvægt vopn í baráttunni gegn mengunarvöldum og mengunarvaldandi fyrirtækjum. Ég er ekki að skálda með það sem ég er að tala um að ofan, ég tel að það sé mjög mikill möguleiki á að til séu hættulegar örverur sem þrífist hér á landi og víðs vegar um heiminn sem valdi sýkingum í taugakerfinu með tilheyrandi afleiðingum fyrir sálarástand þeirra sem fá sýkingarnar. Ég enda póst minn á að segja að setja ætti upp skilti um allar náttúruperlur landsins sem bönnuðu aðgang vinnuvéla og álfyrirtækja á svæðunum sem þjóðin vill vernda, og að þeir sem mest tilbúnir séu undir slíka verndun séu einmitt bændurnir. Um leið og sett hafa verið upp skilti í Þjórsárverum t.d. og út um allan Þjórsárdalinn þá hefur Landsvirkjun ekki lengur heimild til að virkja þarna sökum þess sem stendur á skiltunum og þá má viðkomandi kæra fyrirtækið fyrir að hafa gert tilraun til að efna til umhverfishryðjuverkaglæpastarfsemi eða annarar skaðlegrar starfsemi eða fyrir að hætta sér á verndað náttúruperlusvæði. Ég ráðlegg sem flestum að búa til nógu margar gróusögur um vírusa og hættulega smitsjúkdóma nálægt stöðum þar sem viðkvæmar náttúruperlur þrífast, og blása svo grósusögurnar upp úr öllu valdi svo að þeir sem vinni fyrir álfyrirtækin þori ekki að heimsækja náttúruperlusvæðin. Ef engar hættulegar taugakerfisörverur er að finna á þeim svæðum þar sem mig eða aðra kynni að gruna að þær væru í framtíðinni má alltaf búa til einhverja gróusögu um þær þar til að verja þau svæði fyrir þeirra sem kunna ekki að keyra gulu vélarnar án þess að skemma það sem fyrir þeim verður. Með upplýsingar um raunverulega sjúkdóma sem halda sig nálægt virkjunum og álfyrirtækjahöfuðstöðvum erlendis, og með því að búa sjálfir til slíkar upplýsingar til að hræða óvini okkar og efla ferðamannaiðnaðinn þá getum við Íslendingar bjargað síðustu náttúruperlunum og endurnýjað þær sem eyðilagðar hafa verið fyrir. Fallegir steinar og fjöll sem hafa verið sprengd má t.d. græða að nýju í sitt upprunalega form með til þess ætlaðri tækni. Þá má líka endurnýja horfna fossa með því að búa svo til um svæðin þar sem þeir renna. Þótt ótrúlegt megi virðast er hægt að endurnýja glataðar náttúruperlur og tryggja öryggi þeirra náttúruperlna sem ekki hafa glatast með ýmsum aðferðum. kær kveðja, Ásgeir Valur Sigurðsson, fatlaður áhugamaður um umhverfismál og ýmislegt fleira á Íslandi matrixs@mi.is

Ásgeir Valur Sigurðsson (Óskráður), mið. 14. feb. 2007

Sæll Ómar!

Mig langar að þakka þér fyrir skrifin þín um landið okkar og eftir að hafa horft á Silfur Egils áðan, þ. 11. feb. sér maður hræsnina og tvískinnunginn í pólitíkinni hjá okkur í dag. Hinir "pólitísku andstæðingar" Össur Skarphéðinsson og Bjarni Harðarson töldu nú ekki mikla þörf á nýju "grænu" framboði. Eins og ég skildi þá, þá væru þeirra framboð alveg nógu græn fyrir okkur mörlandann og í ofanálag væru þeir í félagsskap sem kallaður er "Hrútavinafélagið" og hefur sá félagsskapur aðsetur á Stokkseyri. Sem íbúi á Stokkseyri þá hef ég ekki aðra vitneskju um þetta félag annað en hann gengur út á drykkjuskap og samkomur þeim tengdum. Enda sögðust þeir hafa "ótrúleg völd" í gegnum þann félagsskap..

Anna Kr. Pétursdóttir (Óskráður), sun. 11. feb. 2007

Þóra Guðmundsdóttir

Frændi ?

Sæll Ómar. Þar sem ég er frekar forvitin langar mig að vita hvort Ragnar Sverrisson á Akureyir sé eitthvað skyldur þér. Mér datt það sisona í hug þar sem mér finnst ég sjá svip með ykkur og svo heitir hann jú Ragnar.

Þóra Guðmundsdóttir, sun. 11. feb. 2007

Leiðarvísa

Jæja Ómar, eiginlega finnst mér að þitt nafnheitaeinkenni gæti líka verið "Ómar ör landsins" Ég hef tekið eftir þrautseigri baráttu þinni í verndun íslenskrar náttúru og auðlendum þess. Rakst á ljóð Böðvars Guðmundssonar sem heitir "Leiðarvísan" Hún er svona: Enginn þarf að spyrja - hvar gröfin þín er - því hún er þar sem grasið er grænast. Þar er vetrarsnjórinn hvítastur - himinninn heiðastur - og þar syngur vorfuglinn skærast. Nei, enginn þarf að spyrja - hvar gröf þín er. Hún er þar sem tár okkar þorna - og orð okkar þagna. Segjum svo að við látum okkur skiljast að ljóðið gefi okkur vísbendingu á einhvern þátt. Gæti svo verið að náttúruauður okkar landsmanna sé "grasið". Verði sá háttur á að græðgi og skammtímahugbúnaður stjórni förum ákvarðana í sambandi við verndun náttúruauðæfa landsins er varla annars að vænta en að grafir verði grafnar. Kanski þá - á eftir - getum við í staðinn fyrir tært vatn, drukkið tárin, svona til minningar um að einu sinni var..................til hreint vatn.

emelia (Óskráður), fim. 8. feb. 2007

Vildi bara benda þér á...

...ef Framtíðarlandið er spá í framboði þá er áhugaverð umræða um það á Málefnunum. Slóðin er http://www.malefnin.com/ib/index.php?showtopic=96637 og síðan smellirðu á píluna neðst til vinstri til að fletta á næstu síðu :)

Lára Ómarsdóttir (Óskráður), mið. 7. feb. 2007

Frábært lag

Þetta er þrælgott lag og mögnuð söngkona. Má ég setja lagið þitt inn á bloggið mitt?

Hafdís (Óskráður), lau. 3. feb. 2007

Guðlaug Helga Ingadóttir

Frábært lag Ómar

Mér fannst lagið þitt mjög fallegt og seyðandi og söngkona, Soffía Karls. virkilega með góðan flutning og sérstaka rödd:

Guðlaug Helga Ingadóttir, lau. 3. feb. 2007

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir

mig langaði bara...

Ég vildi bara segja að þú hefur hedlur betur náð nýju leveli í aðdáun minn á þér .... Sem lítil stelpa varstu alltaf bara þessi fyndni gaur sem svo vel vildi til að þekktir jólasveininn og varst alltaf svo skemmtilegur.... Seinna þegar ég varð eldri ... þá varstu bara "góð minning" þar til nú um daginn .... Ómar Þú ert einn af hetjunum mínum... þorir að stíga fram og segja nei við þessu peningaveldi og þorir að viðukenna náttúruna okkar sem dýrmætari en virkjanir og ál!!! Takk fyrir að vera fyrirmynd, takk fyrir að vera meira en bara góð æskuminning, takk fyrir að þú!!! kveðja Kleópatra Mjöll

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir, lau. 3. feb. 2007

Ástin

Sæll Ómar. ég verð nú að viðurkenna fyrir þér að við erum báðir ástfagnir af sömu konunni. Ég hef ferðast um hálendi Ísland síðustu 10 ár. Í sumar sagði konan mín að ég væri ástfanginn af landinu. Við eigum víst sömu hjákonuna, Mjóðir Jörð :) Það er eitt gott við þessa konu að enginn verður afbrýðissamur þó að fleiri karlmenn bætast við, hún er yndisleg. Framtíðalandið, nú er verið að spá hvort við förum í framboð. Eg er þessi venjulegi Íslendingur sem er ekki skráður í neinn stjórnmálaflokk. Er helst Kradi en hef samt kosið annað. Ég veit að vinstra fólkið vill ekki framboð en við hin sem erum eins og ég 40% þjóðarinnar viljum sér grænt framboð sem allir geta tekið þátt í, bæði vinstri og hægri. Við elskum öll landið það er ekki pólítík. Helst vil ég fá þig í framboð með Framtíðalandinu og Jón Baldvin er velkominn. Gangi þér vel. Bjarni Már Bjarnason

Bjarni Már Bjarnason (Óskráður), fös. 2. feb. 2007

Stend með þér

Ég vona að Framtíðarlandið verði að veruleika, eins og staðan er núna ert þú sá eini sem þorir að "tala íslensku"! Hvernig stendur á að þvílíkur haugur af ónytjungum vilja á þing sem raun ber vitni? Áfram Ómar, íslensk náttúra þarfnast umboðsmanns!

Ævar Sigdórsson (Óskráður), fim. 1. feb. 2007

Sæll Soffía karls hér.

Bara að skoða bloggið þitt. Sjáumst á Söngvakeppninni. Áfram Júnínótt Kv Soffía

Soffia Karls (Óskráður), fim. 1. feb. 2007

Sigríður Jósefsdóttir

Fundur hjá Framtíðarlandinu

Sæll Ómar, gaman að sjá þig í bloggheimum. Ég var að hlusta á þig í útvarpinu áðan, og vildi gjarnan koma á fundinn annað kvöld. Hvar er hann haldinn, og klukkan hvað? Bestu kveðjur, Sigríður Jósefsdóttir (Vernharðssonar úr Fljótavík)

Sigríður Jósefsdóttir, mið. 31. jan. 2007

Viðbrögð við JBH ath.

Þakka þér fyrir þitt tillag vegna náttúruverndar ég styð þig heilshugar en ef þú ætlar út í stjórnmálabaráttuna sem ég skil mætavel, viltu þá taka inn stefnuna í kvótamálunum sem mér blöskrar, hvernig farið er með landsbyggðina þar, þeir hafa gjörsamlega rústað öllu mannlífi með þessari stefnu sinni, smábátum á að vera heimilt að sækja á miðin út að 12 mílum hindrunarlaust, vegna þess að það er veðrið sem stoppar þessar veiðar af, það þarf ekkert annað. Og annað það kæmi þá hver tittur að landi, en í guðana bænum reyndu að tengja almenna skynsemi eins og náttúruvernd við þá trú mína að fiskurinn í sjónum sé ekki einkaeign örfárra aðila heldur sameign manna sem þeim sé heimillt að veiða, það hlýtur að vera til sanngjörn leið að þessu marki. Samviska mín býður ekki uppá að horfa á hvernig farið er með landið og auðlindir þess, okkur ber skylda til að varðveita það fyrir komandi kynslóðir þess vegna verða þessi tvö mál það sem ég horfi á í komandi kosningum. Virðingarfyllst Grétar Eiríksson

Grétar Eiríksson (Óskráður), þri. 30. jan. 2007

Rúnturinn í Reykjavík

Þakka þér Ómar fyrir ötula baráttu fyrir verndun náttúrunnar, þar hefur þú unnið ómetanlegt verk. Því varð ég fyrir ótrúlegum vonbrigðum þegar ég sá þig í sjónvarpinu í kvöld, lýsa yfir áhuga þínum á því, að endurvekja rúntinn í Reykjavík. Öll vitum við að aukin umferð eykur mengun, meðal annars vegna útblásturs og svifryks. Í flestum borgum annars staðar eru menn að reyna að minnka umferð um miðborgina. Ég skora á þig að endurskoða þessa hugmynd þína eða skýra hana betur hér á blogginu. Er þetta ekki bara gömul "nostalgia" sem hljóp með þig smá spöl? Kveðja Georg V. Janusson

Georg V. Janusson (Óskráður), mán. 29. jan. 2007

Stattu þig!

Það vona ég að þú náir að hvetja Suðurnesja menn til að rísa upp gegn álveri í Helguvík.

Hildur Harðardóttir (Óskráður), mán. 29. jan. 2007

Janus Hafsteinn Engilbertsson

Stend með þér

Sæll Ómar. Ég hef fylgst með þér frá því að þú hófst fyrst að skemmta okkur. Og svo þegar þú byrjaðir sem fréttamaður og mér finnst þú frábær. Það stafar frá þér kraftur og lífsgleði. Það bara að sjá þig á skjánum og heyra í þér, gefur manni kraft. Ég er þó ánægðastur með þig í baráttu þinni við að verja náttúru Íslands. Og þú hefur opnað augu mín fyrir nauðsyn þess að standa vörð um hið óspillta land, með umfjöllun þinni um Kárahnjúkavirkjun. Og eitt vil ég segja þér, sem skipstjóri og náttúru unnandi, að ég þekki engan sem kann að lesa náttúruna eins og þú. Og ég veit líka að þú ert mikill mannþekkjari. Haltu áfram á þessari braut og þú mátt vita, að þjóðin stendur með þér. Baráttu og kærleiks kveðja, Janus Hafsteinn.

Janus Hafsteinn Engilbertsson, mið. 24. jan. 2007

Jón Steinar Ragnarsson

Hvað finnst þér um Forsetahugmynd mína.

Ég kom með þá tillögu hér á blogginu að við hvettum Álfrúnu Örnólfdóttur til framboðs í embætti forseta íslands. Gaman væri að heyra hvort þú tækir undir þetta og segðir mér skoðun þína í gestabókinni minni. Það væri ekki dónalegt að hafa slíkann hvatamann sem þig. Jón Steinar

Jón Steinar Ragnarsson, þri. 23. jan. 2007

Guðlaug Helga Ingadóttir

Styð þig Ómar

Ég vona að þú fáir góðan meðbyr að ofan í þinni baráttu Ómar og styð þig. Lanðið okkar er þjóðareign og gjöf frá Guði. Ekki afhent okkur til að metta græðgina, heldur til umhirðu og græðslu. Til að njóta og rækta. Gróðrasjónarmið til skamms tíma og síðar til eyðileggingar er ekki það sem á að ráða ferðinni, heldur hvernig skilum við landinu okkar áfram til komadi kynslóða. Ég er með vefsíðuna www.eldsto.is og er ný á Blogginu

Guðlaug Helga Ingadóttir, þri. 23. jan. 2007

Hafa samband

Kæri Ómar Ég þarf nauðsynlega að fá með þér fund tengt umræðunni um nýtt framboð. Mikil áhugi hjá öllum landsmönnum tengt breytingu, en það verður að standa vel að því = Ráðgjafafyrirtækið mitt Heilbrigð skynsemi (Jakob 8627127) hefur þónokkuð margar góðar hugmyndir..:). Gleðlilegt ár og leyfðu mér að heyra frá þér (fun@simnet.is)

Jakob Þór Haraldsson (Óskráður), sun. 21. jan. 2007

Ómar Ragnarsson

Þakkir fyrir góðar viðtökur

Ég vil þakka þeim fjölmörgu sem hafa sent mér skilaboð, hvatningarorð og athugasemdir þessa fyrstu daga þessarar bloggsíðu. Ómar.

Ómar Ragnarsson, fös. 19. jan. 2007

Ég tek æfinlega hattin ofan

...fyrir þér Ómar og vonandi verður Rannveig búin að sjá til þess ef hún stendur við loforðin (hótanirnar) að það verði örugglega ekki álhattur nema til skamms tíma.

Einar Einarsson (Óskráður), fös. 19. jan. 2007

Nattura Islands

Takk fyrir að til eru menn eins og þu. Það eru ekki margir sem hafa gert eins mikið fyrir moðir jörð eins og þu. Kær kveðja fra Sviþjoð

Hrafnhildur Ingolfsdottir (Óskráður), mið. 17. jan. 2007

Frábært framtak

Til hamingju Ómar, það verður gaman, forvitnilegt og fræðandi að fylgjast hér með, vegni þér vel í baráttuni.

Sigurjón Hendriksson (Óskráður), mið. 17. jan. 2007

Þetta er rétti andinn

Það er "skref" í rétta átt að nema staðar, líta í kringum sig og átta sig á þeirri stefnu sem umhverfismálin hafa tekið. Við verðum að segja stopp. Það eru alls ekki endalokin að nema staðar í virkjunarmálum. Aðrar og betri tekjulindi eru til staðar.

Hlöðver Þór (Óskráður), mið. 17. jan. 2007

Afram

Tu ert meirihattar og haltu afram. Vildi oska ad thad væru fleiri eins og tu!!!!!

Asa Sveinsdottir (Óskráður), mið. 17. jan. 2007

Ómar - Báknið burt!

Báknið burt! Eða er Sjálfstæðisflokknum viðbjargandi? Báknið burt! var slagorð ungra sjálfstæðismanna í eina tíð - Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra til margra ára, seðlabankastjóra, og tilvonandi eftirlaunaþega af almannafé, Friðriks Sófussonar, alþingismanns og ráðherra til margra ára, forstjóra Landsvirkjunar, og tilvonandi eftirlaunaþega af almannafé, og annarra hugsjónamanna af þeirra kynslóð. Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá. Báknið burt! sagði ungur sjálfstæðismaður - og útnefndi tíu einkavini sína sendiherra á því eina ári, sem hann var í forsvari fyrir því bákni, sem er Utanríkisráðuneyti Íslands. Báknið burt! sagði ungur sjálfstæðismaður - og vinnur öllum árum að því að láta öll fallvötn og uppsprettur Íslands þjóna milljón tonna framtíðardraumi Álbáknsins - sjá Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason. Í eina tíð var Sjálfstæðisflokkurinn EKKI merkisberi þess einstaklingsframtaks, sem skarar eld að eigin köku og vina á kostnað skattborgara og þjóðarhags þegar til lengri tíma er litið. Í eina tíð var Sjálfstæðisflokkurinn EKKI stoð og stytta nátttrölla í íslenzkum viðskiptaheimi sem hafa farið hallloka fyrir ættlausum en framtakssömum einstaklingum úr Keflavík og Sláturfélagi Suðurlands. Í eina tíð var Sjálfstæðisflokkurinn samnefnari hugsjóna - en ekki hagsmunapots. En það er gömul saga og ný, að hugsjónir - Báknið burt! - mega sín einskis þegar einkahagsmunir eru í húfi. _________ Höfundur er Sjálfstæðismaður

Gunnar Tómasson (Óskráður), þri. 16. jan. 2007

Ólafur fannberg

baráttukveðjur

frá neðansjávarheimum

Ólafur fannberg, þri. 16. jan. 2007

Það var bara þetta sem vantaði...

Geri fastlega ráð fyrir að bloggrödd þín muni fara um víðan völl hér í bloggheimum. Þetta þóttu mér góðar fréttir. Baráttukveðjur...

Bára (Óskráður), þri. 16. jan. 2007

Ingibjörg Elsa Björnsdóttir

Þú ert á réttri leið

Sæll Ómar, Þú ert á réttri leið. Haltu endilega þínu striki. Frábær síða. Til hamingju. Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, jarðfræðingur.

Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, mán. 15. jan. 2007

Erum við ekki að selja landið okkar einsog hóru???

Mig langar til að skrifa hér brot úr grein sem var skrifuð af Sigurði Þórarinnssyni í árbók Ferðafélags Íslands 1977. " Við lifum á tímum, sem meta flest til silfurs og seðla og kalla það raunsæi, en nefna e.t.v. trú á þau verðmæti, sem ég hef hér talið að vernda þyrfti, rómantík og flótta frá veruleikanum. En til eru þau verðmæti sem ekki verða metin til fjár og eru það þó þau, sem gefa mannlegu lífi innihald og meiningu og er ekki vafasamt að vanmeta þau? Seðlarnir fúna og við, sem söfnum þeim, fúnum líka, en við fáum ekki umflúið dóm komandi kynslóða um það, hvernig við skiluðum landinu okkar í þeirra hendur. Það er stundum hægt að bæta tjón af fjármálalegum og pólitískum afglöpum, en fordjarfanir á náttúrumenjum eru í flokki þeirra afglapa, sem ekki verða bætt. Allt gull veraldar getur ekki gefið okkur aftur einn einasta geirfugl og engin nýsköpunartækni getur byggt Rauðhólana upp að nýju. Því er mjög haldið á lofti, og vissulega með veigamiklum rökum, að í fossum landsins búi nokkuð af framtíð okkar þjóðar, er byggðist á þeim verðmætum, sem mæld er í kílówattstundum. En þar við liggur einnig brot af framtíðar-hamingju þjóðarinnar, að hún gleymi ekki, að í fossum landsins búa einnig verðmæti sem ekki verða metin til fjár, en mælast í unaðsstundum." Þessi orð Sigurðar eru greinilega gleymd, þ.e.a.s. ef einhver tók eftir þeim á sínum tíma. Ég spyr sjálfa mig,"Hvað varð af samstæðum anda þjóðarinnar, sem ríkti á tíma Jóns Sigurðssonar þegar þeir stóðu fyrir framan Dani og hrópuðu: "Vér mótmælum allir!!!" ?" Þessi einstaki demantur sem þetta land er MÁ EKKI verða auðlind þjóða sem notfæra sér peningagræðgi nútímanns, meir en nú er orðið. Ég hef búið erlendis í 30 ár og er nýkomin heim, og það er hvergi á plánetunni til neitt í líkingu við þetta stórkostlega undraverk náttúrunnar, Ísland !! Ég vona að þjóðin vakni af dvala áður en landið er fallið í hendur erlendra stórkaupmanna.

ragnhildur ragnars (Óskráður), mán. 15. jan. 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband