11.2.2012 | 23:00
Stundin - staðurinn, stjarna fædd ! Til hamingju !
Við félagarnir, Óskar Einarsson og ég, deildum sérstakri ánægju okkar rétt í þessu í símtali yfir því að hún Greta okkar Salóme Stefánsdóttir færi til Bakú fyrir hönd þjóðarinnar.
Ástæðan fyrir því að við samgleðjumst henni svona innilega er sú að Greta naut tónlistarlegrar handleiðslu Óskars frá fjórtán ára aldri og hefur unnið með honum síðan, - og þegar ég sneri mér til Óskars til þess að útsetja fyrir mig fiðluleikskafla í laginu "Stundin - staðurinn", sem var í úrslitakeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins 2006, mælti Óskar eindregið með því að Greta léki á fiðluna, þá aðeins 17 ára ef ég man rétt. ´
Í fyrsta myndskeiði lagsins og upphafi þess sást þessi yndislegi listamaður leika innganginn og þar með stimpla sig inn í fyrsta sinn inn í þessa keppni.
Hún stóð sig afburða vel, það var augljóst hvílík hæfileika listakona var þarna á ferð sem aðeins biði eftir því að springa endanlega út, - þetta væri aðeins spurning um hvenær upp rynni stóra "stundin - staðurinn" og að hún yrði stór stjarna hér.
Erlendis er oft sagt: "A star is born", - stjarna er fædd.
Það á svo sannarlega við um Gretu Salóme. Ég er sannfærður um að hún á eftir að verða einhver allra besti fulltrúi, sem íslenska þjóðin hefur sent í úrslitakeppni Evróvision.
Innilega til hamingju, mín elskulega Greta Salóme! Nú var það og verður svo sannarlega aftur "stundin - staðurinn hjá þér !
|
Jónsi og Greta til Bakú |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 13.2.2012 kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
11.2.2012 | 22:16
Innbyggð í kerfið í 70 ár.
Í ár eru rétt 70 ár síðan verðbólga fór fyrst fyrir alvöru á fulla ferð hér á landi. Ástæðurnar fyrir þessu stjórnleysi voru nokkrar.
Framkvæmdir vegna hersetu Breta og síðar Bandaríkjamanna skópu mikla þenslu. Önnur eins innspýting í íslenska hagkerfið átti sér enga hliðstæðu.
Þetta gerðist á versta mögulega tima vegna þegar alger trúnaðarbrestur varð milli foringja stærstu stjórnmálaflokkanna, Ólafs Thors og Hermanns Jónassonar.
Tvennar alþingiskosningar fóru fram, Sósíalistaflokkurinn vann stórsigur og breytti hlutföllum á þingi og í kjölfarið fylgdi stjórnarkreppa, sem var svo alvarleg, að Sveinn Björnsson ríkisstjóri myndaði utanþingsstjórn sem sat í tvö ár.
Á þessum árum mælti Ólafur Thors þau fleygu orð, að verðbólguna og dýrtíðina væri hægt að kveða niður með "einu pennastriki" og var lengi hæddur fyrir þau, vegna þess að í hönd fór samfellt verðbólguskeið sem stóð í tæpa hálfa öld.
Gengi íslensku krónunnar var fellt 1939 og 1950 og árið 1959 reyndi minnihlutastjórn Emils Jónssonar að færa verðlagið niður en það hrökk skammt og í hönd fóru þrjátíu ár víxlverkana kaupgjalds og verðlags með gengisfellingum æ ofan í æ.
Eina þeirra kallaði þáverandi fjármálaráðherra, Halldór E. Sigurðsson, "gengissig í einu stökkki."
Það var gott dæmi um það þegar stjórnmálamenn reyndu að breiða yfir þá staðreynd að hér ríkti samfellt stjórnleysisskeið í efnahagsmálum.
Þjóðarsáttin 1990 verður í mínum huga æ merkilegri eftir því sem árin líða.
Hún fól í sér einu umtalsverðu aðgerðina til þess að vinna bug á óstöðugleikanum og óreiðunni, sem hefur verið fylgifiskur íslenskra efnahagsmála og næstu árin á eftir nutu stjórnmálamenn góðs af því sem menn utan þings afrekuðu með þjóðarsáttinni.
Verðbólga er innbyggð í það hagkerfi heimsins sem hefur hagvöxt sem forsendu og Ísland getur ekki verið eyland í þessu efni.
En okkur virðist fyrirmunað að halda okkur til langframa nálægt því meðaltali verðbólgunnar sem ríkir í kringum okkar.
|
Verðbólgan er innbyggð í kerfið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.2.2012 | 14:23
Ýjað að dauðasök.
Rétt er að gera sér grein fyrir því sem Snorri Óskarsson setur fram í skrifum sínum sem er mun alvarlega en það að samkynhneigð sé synd.
Hann lætur ekki staðar numið við það að skilgreina samkynhneigð sem synd heldur líka að hún beri í sér dauðann sjálfan, sem ég get ekki skilið öðruvísi en svo að hann skilgreini hana sem dauðasynd.
Og þá er stutt yfir í það að réttlætanlegt sé að láta liggja dauðarefsingu við samkynhneigð eins og gerst hefur í sumum fjarlægum löndum, því að Snorri tekur líkingu við bankaræningja, sem fái þungan dóm og telur að samkynhneigðir skuli teljast glæpamenn og eigi þá væntanlega skilið að fá hliðstæða dóma og verða settir í fangelsi fyrir hegðun sem skilgreina megi sem dauðasök.
Snorri hefur að vísu frelsi til að hafa þessar skoðanir, en engu að síður er sjaldgæft að sjá svona róttækar hugmyndir, sem fara í bága við grundvallaratriði þeirra gilda sem eru undirstaða mennta- og menningarkerfis okkar.
Ég hef áður lýst því hvernig einn af drengjunum í Stórholtinu í Reykjavík, þar sem ég ólst upp, sýndi þegar 3ja til 4ra ára gamall af sér "afbrigðilega hegðun" að því leyti að hann vildi frekar leika sér á sama hátt og stelpur heldur en vera í strákaleikjunum.
Þetta eina tilfelli, þar sem ég þekki best allan æviferil samkynhneigðs manns, nægir mér til að álykta, að það sé ekki réttlátt að líkja hans meðfædda eðli við glæp og þaðan af síður synd, sem sé dauðasök.
Raunar hefur þessi samkynhneigði maður fyrir löngu tekið út þá refsingu að líf hans var eyðilagt vegna þeirrar andúðar og skilningsleysis sem hann varð að þola þegar hann oft á tíðum gekk í gegnum helvíti á jörðu.
Snorri Óskarsson er ekki einn á ferð í grunnskólanum, sem hann kennir við. Á hverjum degi má búast við að hann hitti nemendur sem eru samkynhneigðir, því að hlutfall þeirra er það hátt.
Þessir nemendur verða þá að sætta sig við það að horfast í augu við mann, sem telur þá vera ótínda glæpamenn af verstu sort, sem hafi gerst sekir um hegðun sem er dauðasök.
|
Óttast uppsögn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)







